Framkvæmdastjórar allra 14 fræðslu- og símenntunarmiðstöðva landsins komu nýverið saman til vinnufundar hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA). Auk þeirra sátu fundinn fulltrúar eigenda FA, frá Samtökum atvinnulífsins (SA) og Alþýðusambandi Íslands (ASÍ), ásamt formanni Fræðslusjóðs.
Á fundinum fór formaður Fræðslusjóðs yfir hlutverk og stöðu sjóðsins. Í kjölfarið sköpuðust líflegar umræður um fjárframlög til sjóðsins og úthlutunarreglur hans. Aðsókn að framhaldsfræðslu heldur áfram að aukast og því er ljóst að nauðsynlegt er að auka fjárframlag til sjóðsins. Með því geta fræðsluaðilar tryggt að markhópur framhaldsfræðslunnar hafi áfram tækifæri til náms, ráðgjafar og raunfærnimats í sínu nærumhverfi.
Hildur Betty Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri FA, kynnti einnig niðurstöður könnunar sem send var á framkvæmdastjóra fræðslu- og símenntunarmiðstöðva. Markmið könnunarinnar var að greina starfsemi FA hvað varðar gæði hennar og áhrif sem og að varpa ljósi á hvað má efla og hvernig styðja eigi við markvissa forgangsröðun í þjónustu við fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar á komandi árum. Heildarniðurstöður sýna að framkvæmdastjórar eru almennt ánægðir með stuðning FA, en jafnframt er ljóst að breytt samfélagsgerð felur í sér auknar áskoranir innan framhaldsfræðslunnar. Þar vegur sveigjanleiki og nálægð við notendur þó þungt sem helstu styrkleikar hennar.
Að lokum var rætt um tillögu að sameiginlegu markaðsátaki þar sem hlutverk og helstu verkfæri framhaldsfræðslunnar yrðu kynnt. Fundargestir voru sammála um mikilvægi þess að efla vitund í samfélaginu um mikilvægi framhaldsfræðslunnar.
