Allar námskrár

Námskrár flokkar
Að lesa og skrifa á íslensku
Náminu er ætlað að auka hæfni námsmanna til að lesa og skrifa á íslensku og öðlast öryggi í framburði íslenskra hljóða.
Að lesa og skrifa á íslensku

Að lesa og skrifa á íslensku er 100 klukkustunda nám á 1. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 5 framhaldsskólaeininga. Náminu er ætlað að auka hæfni námsmanna til að lesa og skrifa á íslensku og öðlast öryggi í framburði íslenskra hljóða.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Aftur í nám
Námið er ætlað þeim sem eiga í erfiðleikum með lestur og ritun.
Aftur í nám

Aftur í nám er 95 kennslustunda nám sem mögulegt er að meta til 7 eininga. Námið er ætlað þeim sem eiga í erfiðleikum með lestur og ritun.

Námskrá á pdf

Sjá kynningarmynd um námsleiðina

Bæklingur 

Efling stafrænnar hæfni: grunnnám í forritun
Námið er ætlað þeim sem vilja fá þjálfun í að búa til forrit og tileinka sér sjálstæð vinnubrögð og hugsun í forritunarumhverfi.
Efling stafrænnar hæfni: grunnnám í forritun

Námskráin Efling stafrænnar hæfni: grunnnám í forritun lýsir námi á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið er alls 80 klukkustunda vinnuframlag nema.

Námið skiptist í fjóra námsþætti um grunnhugtök forritunar, forritun og kóðun, og hagnýt forritun.

Námskráin á pdf

Námskráin í námskrárgrunni

Námskráin er þróuð af Framvegis, miðstöð símenntunar.

Fagnám fyrir starfsþjálfa
Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfsþjálfun á sínum vinnustað.
Fagnám fyrir starfsþjálfa

Fagnám fyrir starfsþjálfa er 170 klukkustunda nám á 2. til 3. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 8 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfsþjálfun á sínum vinnustað.

Námskráin byggir á starfaprófílnum „Starfsþjálfi“, sem finna má hér

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

mslýsing

Fagnám í umönnun fatlaðra
Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra og veita framsækna og metnaðarfulla þjónustu.
Fagnám í umönnun fatlaðra

Fagnám í umönnun fatlaðra er 324 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 16 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra og veita framsækna og metnaðarfulla þjónustu.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni 

Fagnámskeið fyrir starfsmenn í félags- og heilbrigðisþjónustu
Námið er ætlað þeim sem annast um eða hlynna að sjúkum eða öldruðum á einkaheimilum eða stofnunum.
Fagnámskeið fyrir starfsmenn í félags- og heilbrigðisþjónustu

Fagnámskeið fyrir starfsmenn félags- og heilbrigðisþjónustu er 210 klukkustunda nám á 1. til 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 10 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem annast um eða hlynna að sjúkum eða öldruðum á einkaheimilum eða stofnunum.

Námskráin byggir á starfaprófílnum „Umönnun á hjúkrunarheimilum“, sem finna má hér

Námskráin á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Námslýsing

Fagnámskeið fyrir starfsmenn leikskóla
Námið er ætlað þeim sem vinna á leikskólum en hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi.
Fagnámskeið fyrir starfsmenn leikskóla

Fagnámskeið fyrir starfsmenn leikskóla er 210 kennslustunda nám sem mögulegt er að meta til 17 eininga. Námið er ætlað þeim sem vinna á leikskólum en hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi og er fullnægjandi undirbúningur fyrir framhaldsnám á leikskólabrú framhaldsskóla.

Námskrá á pdf

Félagsliðagátt
Námið felur í sér þjálfun til að styðja við og efla færni þjónustunotenda við athafnir daglegs lífs, stuðla að auknu sjálfstæði þeirra og jákvæðri sjálfsmynd.
Félagsliðagátt

Námskráin Félagsliðagátt lýsir námi á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið er alls 1720 klukkustunda vinnuframlag nema og jafngildir 86 framhaldsskólaeiningum.
Námið er fyrir fullorðið fólk á vinnumarkaði með starfsreynslu sem jafngildir að lágmarki fullu starfi í eitt ár. Markmið námsins er að auka þekkingu, færni og fagkunnáttu þeirra sem sinna einstaklingum sem þurfa aðstoð eða sérhæfða þjónustu við athafnir daglegs lífs. Nemar takast á við verkefni samkvæmt verklýsingu og fyrirmælum, efla eigið læsi á aðstæður og verkefni þar sem lausnir eru ekki sjálfgefnar en krefjast þekkingar, hugkvæmni og hæfni í samskiptum, rökvísi og leikni í lýðræðislegum vinnubrögðum.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Ferðaþjónn
Náminu er ætlað einstaklingum sem starfa í ferðaþjónustu eða hafa hug á að hefja þar störf.
Ferðaþjónn

Námskráin Ferðaþjónn lýsir námi á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið er í 19 námsþáttum, er starfsnám að hluta, og ætlað einstaklingum sem starfa í ferðaþjónustu eða hafa hug á að hefja þar störf.

Heildarlengd námsins eru 680 klukkustundir þar sem starfsþjálfun er 400 klukkustundir. Mögulegt er að fá mat á námið til allt að 34 eininga á framhaldsskólastigi.

Námskráin er unnin af Fræðslunetið, símenntun á Suðurlandi

Námskrá í námskrárgrunni

Ferðaþjónusta –  Veitingasalur
Markmið námsins er að búa nemendur undir fjölbreytt þjónustustörf í veitingasal á borð við móttöku gesta, viðeigandi upplýsingagjöf, að taka við pöntunum og þjóna til borðs.
Ferðaþjónusta –  Veitingasalur

Ferðaþjónusta –  Veitingasalur er 130 klukkustunda nám sem er 6,5 einingar á framhaldsskólastigi og er á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið er sjálfstætt framhald af námskránum Ferðaþjónusta I og Ferðaþjónusta II. Námskráin byggir á starfaprófílnum „Þjónusta í veitingasal” en einnig er tekið mið af ítarlegri greiningu á störfum almennt í ferðaþjónustu.

Markmið námsins er að búa þátttakendur undir fjölbreytt þjónustustörf í veitingasal s.s. móttöku gesta, viðeigandi upplýsingagjöf, að taka á móti pöntunum og þjóna til borðs.

Námskráin á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Ferðaþjónusta – móttaka á gististöðum
Markmið námsins er að fólk sem lýkur því hafi þá hæfni sem þarf til að taka á móti fjölbreyttum hópi gesta, miðla upplýsingum til gesta og samstarfsfólks auk þess að sinna öðrum skilgreindum verkefnum starfsins.
Ferðaþjónusta – móttaka á gististöðum

Ferðaþjónusta – móttaka á gististöðum er 130 klukkustunda nám sem er 6,5 einingar á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið er sjálfstætt framhald af námskránum Ferðaþjónusta I og Ferðaþjónusta II. Námskráin byggir á starfaprófílnum „Móttaka á gististöðum“ en einnig er tekið mið af ítarlegri greiningu á störfum almennt í ferðaþjónustu.

Markmið námsins er að fólk sem lýkur því hafi þá hæfni sem þarf til að taka á móti fjölbreyttum hópi gesta, miðla upplýsingum til gesta og samstarfsfólks auk þess að sinna öðrum skilgreindum verkefnum starfsins.

Námskráin á pdf

Námskráin í námskrárgrunni

Ferðaþjónusta I
Námið er ætlað þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin í starfi við ferðaþjónustu eða hafa hug á að sinna slíkum störfum.
Ferðaþjónusta I

Ferðaþjónusta I er 100 klukkustunda nám sem er 5 einingar á framhaldsskólastigi og er á fyrsta þrepi hæfniramma um íslenska menntun, þó nokkrir námsþættir séu á öðru hæfniþrepi. Námskráin tengist starfaprófílum í ferðaþjónustu, fjölbreyttum störfum á vettvangi ferðaþjónustu og eldri námskrám. Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa í ferðaþjónustu og hafa hug á að efla færni sína í að sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á ýmsum sviðum innan hennar.

Námið er ætlað þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin í starfi við ferðaþjónustu eða hafa hug á að sinna slíkum störfum. Markmið námsins er að fólk sem lýkur náminu verði fært um að starfa undir umsjón reyndari starfsmanna en með nokkru sjálfstæði í afmörkuðum viðfangsefnum við algeng störf sem tengjast móttöku og þjónustu við fjölbreyttan hóp ferðamanna og jafnframt að vera góður undirbúningur fyrir frekara nám á sviði ferðaþjónustu eins og til dæmis fyrir nám samkvæmt námskánni Ferðaþjónusta II.

Námskráin á pdf

Námskráin í námskrárgrunni

Ferðaþjónusta II
Markmið námsins er einnig að vera góður undirbúningur til þróunar í starfi sem og fyrir sérhæfðara nám á sviði ferðaþjónustu.
Ferðaþjónusta II

Ferðaþjónusta II er 100 klukkustunda nám sem er 5 einingar á framhaldsskólastigi og er á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun, þó nokkrir námsþættir séu á þriðja hæfniþrepi. Námskráin tengist starfaprófílum í ferðaþjónustu, fjölbreyttum störfum á vettvangi ferðaþjónustu og eldri námskrám. Námið er framhald af námskránni Ferðaþjónusta I og er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna störfum á sviði móttöku og þjónustu við ferðamenn. Markmið námsins er að fólk sem lýkur náminu sé fært um að starfa með öðrum, taka frumkvæði í samskiptum og bera ábyrgð á skilgreindum viðfangsefnum sem tengjast upplýsingagjöf, móttöku og þjónustu við fjölbreyttan hóp ferðamanna og jafnframt að stuðla að jákvæðri upplifun og ánægju gestanna. Markmið námsins er einnig að vera góður undirbúningur til þróunar í starfi sem og fyrir sérhæfðara nám á sviði ferðaþjónustu.

Námskráin á pdf

Námskráin í námskrárgrunni

Fjölvirkjar
Tilgangur námsins er að námsmenn fái nytsamlegar upplýsingar um starf sitt innan fyrirtækisins sem þeir starfa hjá.
Fjölvirkjar

Fjölvirkjar er 170 kennslustunda nám sem mögulegt er að meta til 13 eininga. Námið er ætlað lykilstarfsmönnum í iðnaðar-, framleiðslu- og þjónustufyrirtækjum, sem vilja auka persónulega og faglega hæfni sína.

Námskrá á pdf

Fræðsla í formi og lit
Námið er ætlað þeim sem hafa áhuga á skapandi starfi, hugmyndavinnu, myndgerð, framsetningu myndlistar og myndlistarsögu.
Fræðsla í formi og lit

Fræðsla í formi og lit er 432 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 21 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem hafa áhuga á skapandi starfi, hugmyndavinnu, myndgerð, framsetningu myndlistar og myndlistarsögu.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Grunnmennt
Námið er ætlað fólki sem vill byggja upp haldgóða undirstöðu í kjarnagreinunum og undirbúa sig skv. aðalnámskrá framhaldsskóla.
Grunnmennt

Námskráin Grunnmennt lýsir námi á fyrsta þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið er alls 500 klukkustunda vinnuframlag nema og jafngildir 24 framhaldsskólaeiningum. Mögulegt er að skipta námskránni í Grunnmennt I og Grunnmennt II eins og lýst er í námskránni.
Námið er fyrir fólk með stutta formlega skólagöngu að baki. Markmið námsins er einkum að stuðla að jákvæðu viðhorfi til náms, byggja upp undirstöðu í námstækni, færnieflingu, sjálfstyrkingu og samskipti. Um leið og námið byggir upp haldgóða undirstöðu í kjarnagreinum (íslensku, stærðfræði og erlendum tungumálum) auk mikilvægra þátta fyrir daglegt líf og störf svo sem samskipti og tölvu- og upplýsingatækni.

Námskrá á pdf

Námskráin í námskrárgrunni

Grunnnámskeið fyrir fiskvinnslufólk
Námið er ætlað þeim sem starfa við verkun og vinnslu sjávarafla, það er í flakavinnslu, frystingu, söltun, skreiðarverkun, rækju- og skelvinnslu.
Grunnnámskeið fyrir fiskvinnslufólk

Grunnnámskeið fyrir fiskvinnslufólk er 128 klukkustunda nám á 1. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 7 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem starfa við verkun og vinnslu sjávarafla svo sem í flakavinnslu, frystingu, söltun, skreiðarverkun og rækju- og skelvinnslu.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Námskráin á ensku

Námskráin á pólsku

Námskráin á tælensku

Grunnur I – ENS, UTN, NÁM og SJS
Námið er á hæfniþrepi 1 og er einkum fyrir fólk sem vill efla sig í námstækni, sjálfstyrkingu og samskiptum ásamt því að auka færni sína og þjálfast í ensku og upplýsingatækni. Náminu er einnig ætlað að undirbúa nema betur fyrir frekara nám í sömu fögum.
Grunnur I - ENS, UTN, NÁM og SJS

Námsleiðin Grunnur I – nám, sjs, ens, og utn, nýtir fjóra námsþætti námskrár FA Grunnmennt. Námið er alls 115 klukkustunda vinnuframlag nema.
Námið er fyrir fólk sem vill efla sig í námstækni, samskiptum og sjálfstyrkingu ásamt því að styrkja færni sína í ensku og upplýsingatækni með það að markmiði að verða betur undirbúin til að takast á við verkefni sem tengjast þeim námsþáttum og jafnframt að undirbúa sig fyrir frekara nám. Námið er á hæfniþrepi 1 samkvæmt Hæfniramma um íslenska menntun.

Námsleiðin á pdf

Hagnýt íslenska í lífi og samfélagi
Námið er fyrir fólk af erlendum uppruna sem vill auka og þjálfa íslensku til að verða virkara í íslensku samfélagi með traustari tökum á tungumálinu. Upplýsingatækni er nýtt á margan hátt í náminu, m.a. í tengslum við samfélag, menningu í landinu og sjálfseflingu námsfólks. Námið fer fram á íslensku og samsvarar færnistigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Hagnýt íslenska í lífi og samfélagi

Námsleiðin Hagnýt íslenska í lífi og samfélagi – B1 nýtir þrjá námsþætti námskrár FA Íslensk menning og samfélag, alls 136 klukkustunda vinnuframlag nema og jafngildir 6 framhaldsskólaeiningum.

Námið er fyrir fólk sem vill efla sig og styrkja færni sína í íslensku og upplýsingatækni með það að markmiði að verða virkari þátttakendur í samfélagi og menningu landsins. Námið er á hæfniþrepi tvö samkvæmt Hæfniramma um íslenska menntun.

Námsleið á pdf

Hvernig á að vera sjálfstætt starfandi á Íslandi
Náminu er ætlað að styðja við og þjálfa námsfólk við að byggja upp eigið fyrirtæki á Íslandi. Einkum er fengist við tilboðsgerð, samninga við mögulega viðskiptavini auk markaðssetningar þjónustunnar á Netinu. Námsleiðin byggir á þremur námsþáttum úr námskrá FA, Sölu-, markaðs- og rekstrarfræði.
Hvernig á að vera sjálfstætt starfandi á Íslandi

Námsleiðin Hvernig á að vera sjálfstætt starfandi á Íslandi nýtir þrjá námsþætti Sölu-, markaðs- og rekstrarfræði, alls 60 klukkustunda vinnuframlag nema og jafngildir 3 framhaldsskólaeiningum.

Námið er fyrir fólk sem vill styrkja sig og eflast í sjálfstæðum rekstri fyrirtækis á Íslandi. Námið er á hæfniþrepi tvö samkvæmt Hæfniramma um íslenska menntun.

Námsleiðin á pdf

Íslensk menning og samfélag 
Tilgangur námsins er að auðvelda fólki af erlendum uppruna aðlögun að íslenskum vinnumarkaði og samfélagi.
Íslensk menning og samfélag 

Íslensk menning og samfélag er 200 klukkustunda nám á 1. til 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 10 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað fólki af erlendum uppruna til að auðvelda því aðlögun að íslenskum vinnumarkaði og samfélagi.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Íslenska og atvinnulíf
Námsleiðin sem er hluti af námskrá FA Íslensk menning og samfélag. Tilgangur námsins er að auðvelda fólki af erlendum uppruna kynnast og læra íslenskt mál, laga sig að íslenskum vinnumarkaði og átta sig á uppbyggingu íslensks samfélags
Íslenska og atvinnulíf

Námsleiðin Íslenska og atvinnulíf nýtir þrjá námsþætti námskrár FA Íslensk menning og samfélag. Heildarnámstími námsleiðarinnar er 104 klukkustundir.
Í náminu er lögð áhersla á íslenskt mál og atvinnulíf ásamt því að byggja upp sjálfstraust og samskiptafærni.

Námsleiðin á pdf

Íslenska, atvinnulíf og samfélag
Námsleiðin er hluti af tveimur námskrám FA: Íslensk menning og samfélag; Skref til sjálfshjálpar. Tilgangur námsins er fyrst og fremst að auðvelda fólki af erlendum uppruna að læra íslenskt mál, kynnast og átta sig á íslensku samfélagi og laga sig að íslenskum vinnumarkaði.
Íslenska, atvinnulíf og samfélag

Námsleiðin Íslenska, atvinnulíf og samfélag nýtir þrjá námsþætti tveggja námskráa FA: Íslensk menning og samfélag auk allra námsþátta námskrárinnar Skref til sjálfshjálpar. Heildarnámstími námsleiðarinnar er 171 klukkustundir.  

Í náminu er sérstaklega mikil áhersla á íslenskt mál, lestur, hlustun, tal og ritun. Auk þess er fjallað um atvinnulíf á Íslandi ásamt því að byggja upp sjálfstraust og samskiptafærni. Ýmis verkefni eru lögð fyrir til að styrkja nám.  

Námsleiðin á pdf

Líf og heilsa – lífsstílsþjálfun
Markmið námsins er að auka þekkingu námsmanna á áhrifaþáttum heilsu, leikni þeirra í heilsulæsi og hæfni til að taka ábyrgð á eigin heilsu.
Líf og heilsa – lífsstílsþjálfun

Líf og heilsa – lífsstílsþjálfun er 300 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 15 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað fólki sem vill taka ábyrgð á eigin heilsu og bæta hana.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Meðferð matvæla
Námsskráin lýsir námi sem er ætlað þeim sem starfa við eldi eða ræktun spendýra, fugla, fiska eða korns, úrvinnslu, geymslu eða sölu afurða, gerð, geymslu eða sölu matvæla.
Meðferð matvæla

Meðferð matvæla er 60 kennslustunda nám sem mögulegt er að meta til 5 eininga. Námið er ætlað þeim sem starfa við eldi spendýra, fugla, fiska eða ræktun korns.

Námskrá á pdf

Menntagrunnur, ENS, STÆ og UTN
Námið er á hæfniþrepi 1 og er einkum fyrir fólk sem vill auka færni sína og þjálfast í ensku, stærðfræði og upplýsingatækni. Náminu er ætlað að undirbúa nema betur fyrir frekara nám eins og Menntastoðir eða álíka nám á hæfniþrepi 2.
Menntagrunnur, ENS, STÆ og UTN

Námsleiðin Menntagrunnur – ens, stæ og utn, nýtir þrjá námsþætti námskrár FA Grunnmennt. Námið er alls 125 klukkustunda vinnuframlag nema.

Námið er fyrir fólk sem vill efla sig og styrkja færni sína í ensku, stærðfræði og upplýsingatækni með það að markmiði að verða betur undirbúin til að takast á við nám í framhaldinu, svo sem Menntastoðir eða sambærilegt nám á hæfniþrepi 2. Námið er á hæfniþrepi 1 samkvæmt Hæfniramma um íslenska menntun.

Námsleið á pdf

Menntastoðir
Námið er ætlað þeim sem stefna á nám við undirbúningsdeildir háskóla, ljúka framhaldsskóla eða vilja efla hæfni sína í ABG skv. aðalnámskrá framhaldsskóla.
Menntastoðir

Námskráin Menntastoðir lýsir námi á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið er alls 1200 klukkustunda vinnuframlag nema og jafngildir 60 framhaldsskólaeiningum.
Námið er fyrir fólk með stutta formlega skólagöngu að baki og ætlað þeim sem stefna á nám við undirbúningsdeildir háskóla, ljúka framahaldsskóla eða vilja efla hæfni sína í almennum bóklegum greinum samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Markmið námsins er að styrkja jákvætt viðhorf til náms og auðvelda námsfólki að takast á við ný verkefni og mögulega áframhaldandi nám. Val námsþátta er einkum ætlað að styðja námsfólk í að efla eigin námstækni og samskipti, almennar bóklegar greinar, tölvu- og upplýsingatækni og lokaverkefni þar sem þjálfuð er sjálfstæð verkefnavinna með samþættingu námsþátta.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Móttaka og miðlun 
Markmið með náminu er að auka hæfni námsmanna við að taka á móti viðskiptavinum og að veita þjónustu og upplýsingar í samræmi við þjónustustefnu fyrirtækja.
Móttaka og miðlun 

Móttaka og miðlun er 60 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 3 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við móttöku viðskiptavina og veita þjónustu og upplýsingar í samræmi við þjónustustefnu fyrirtækja.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Nám í stóriðju – framhaldsnám
Námið er ætlað þeim sem sinna starfi í stóriðju og hafa lokið námi samkvæmt námskránni Nám í stóriðju - grunnnám.
Nám í stóriðju – framhaldsnám

Nám í stóriðju – framhaldsnám er 500 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 25 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem sinna starfi í stóriðju og hafa lokið námi samkvæmt námskránni Nám í stóriðju – grunnnám.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Nám í stóriðju – grunnnám
Námið er ætlað þeim sem sinna starfi í stóriðju þar sem bræðsluofnar eða rafgreiningarker eru burðarásar í framleiðslunni.
Nám í stóriðju – grunnnám

Nám í stóriðju – grunnnám er 400 klukkustunda nám á 1. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 20 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem sinna starfi í stóriðju þar sem bræðsluofnar eða rafgreiningarker eru burðarásar í framleiðslunni.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Námslína í ferðaþjónustu
Heildstætt nám í ferðaþjónustu (HNÍF) byggt upp sem tveir hlutar, grunnur (kjarni) og sérhæfing. Þrjár námskrár: kjarni og móttaka; kjarni og böð, lindir, lón; kjarni og veitingar. Tilgangur með náminu er að þjálfa upp og styrkja þekkingu, færni og fagkunnáttu til ferðaþjónustu sem starfs- og þjónustugreinar.
Námslína í ferðaþjónustu

Námskrárnar þrjár lýsa námi á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Nám hverrar námskrár er 1800 klukkustunda vinnuframlag nema og jafngildir 90 framhaldsskólaeiningum.

Markmið námsins er að auka þekkingu, færni og fagkunnáttu fólks sem hefur áhuga á að vinna í ferðaþjónustu eða er þegar við störf innan geirans. Tilgangur námsins er jafnframt að efla sjálfstæði við algeng störf sem tengjast þjónustu við fjölbreyttan hóp ferðafólks og jafnframt að námið sé góður undirbúningur fyrir störf og áframhaldandi nám til frekari sérhæfingar á sviði ferðaþjónustu.

Kjarni – Móttaka

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Kjarni – Veitingar

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Kjarni – Böð, lindir, lón

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Rekstrar- og frumkvöðlanám – Frá hugmynd til framkvæmdar
Námið er á hæfniþrepi 2 og er ætlað fyrir fólk sem vill auka færni sína og þjálfast í þáttum sem lúta að rekstri og rekstrarlegum forsendum í samhengi við að stofan eigið fyrirtæki og markaðssetningu vöru og/eða þjónustu þess fyrirtækis.
Rekstrar- og frumkvöðlanám - Frá hugmynd til framkvæmdar

Námsleiðin Rekstrar- og frumkvöðlanám– Frá hugmynd til framkvæmdar, nýtir sjö námsþætti námskrár FA Sölu-, markaðs- og rekstrarfræði. Námið er alls 192ja klukkustunda vinnuframlag nema.

Námið er fyrir fólk sem vill efla sig og styrkja færni sína til að auðvelda stofnun eigin rekstrar/fyrirtækis og til að vera undirbúin undir að takast á við þá þætti sem í slíkri ábyrgð og jafnvel einnig frumkvöðlastörfum felast. Allt frá frumkvöðlafræði og markaðsrannsóknum er einnig lykiltölur í fyrirtækjarekstri og gerð viðskiptaáætlana hluti af náminu. Námið er á hæfniþrepi 2 samkvæmt Hæfniramma um íslenska menntun.

Námsleiðin á pdf

Samfélagstúlkur
Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfi við samfélagstúlkun eins og því er lýst í starfaprófíl.
Samfélagstúlkur

Samfélagstúlkur er 130 klukkustunda nám á 3. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 6 eininga á framhaldsskólastigi. Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfi við samfélagstúlkun sem felst í því að miðla munnlega merkingu á milli aðila sem ekki tala sama tungumál, án þess að taka afstöðu til viðfangsefnisins.

Námskráin byggir á starfaprófílnum ,,Samfélagstúlkur“ sem má finna hér

Námskráin á pdf

Námskráin í námskrárgrunni

Námslýsing á pdf

Námskráin er þróuð af Mími

Skjalaumsjón
Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfi við skjölun og frágang skjala.
Skjalaumsjón

Skjalaumsjón er 160 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 8 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfi við skjölun og frágang skjala, með sérstakri áherslu á rafræna skjalastjórnun.

Námskráin byggir á starfaprófílnum „Skjalaumsjón“, sem finna má hér

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun
Námið er ætlað einstaklingum með lestrar- og skriftarörðugleika með það að markmiði að auka færni þeirra í lestri og ritun.
Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun

Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun er 40 klukkustunda nám á 1. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 2 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað einstaklingum með lestrar- og skriftarörðugleika með það að markmiði að auka færni þeirra í lestri og ritun.

Námsskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Ummæli námsmanna

Skrifstofunám
Markmiðið er að veita fólki á vinnumarkaði sem er 20 ára eða eldra, hæfni til að starfa við sem fjölbreyttust störf á skrifstofu og verða fjölhæfur og góður starfskraftur.
Skrifstofunám

Skrifstofunám er 160 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 8 framhaldsskólaeininga. Námið er fyrir þá sem hafa hug á að sinna almennum skrifstofustörfum eða sækja frekara nám á því sviði.

Námskrá í námskrárgrunni

Námskráin er þróuð af Fræðslumiðstöð Vestfjarða

Skrifstofuskólinn
Tilgangur námsins er að efla þekkingu og auka hæfni þeirra sem sinna eða hafa hug á að sinna almennum skrifstofustörfum.
Skrifstofuskólinn

Skrifstofuskólinn er 360 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 18 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna almennum skrifstofustörfum með áherslu á tölvur, bókhald og skrifstofutækni.

Námskráin á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Smiðja 1 – 1
Megintilgangur með námi í Smiðju er að nemar kynnist fjölbreyttum vinnuaðferðum þar sem reynir á samþættingu huga og handa, sköpunarkraft og fjölbreytt tjáningarform.
Smiðja 1 – 1

Smiðja 1 – 1 er 160 klukkustunda nám á 1. þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námskráin er sú fyrri í röð tveggja á hæfniþrepi 1. Við stíganda milli námskránna Smiðja 1-1 og Smiðja 1-2 er tekið mið af evrópska hæfnirammanum um menntun, þrep eitt og þrep tvö. Námið er ætlað fólki sem vill kynnast fjölbreyttum vinnuaðferðum við að byggja upp verkkunnáttu, reynir á sköpunarkraft, samhæfingu og fjölbreytt tjáningarform þátttakenda.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Til að keyra smiðju námskrár þarf að liggja fyrir lýsing á verkefni sem tekið er fyrir. FA hefur þróað sniðmát fyrir fræðsluaðila til að skrifa lýsingar á verkefnum fyrir smiðju.
Námskráin hlaut vottun í desember 2022.

Smiðja 1 – 2
Megintilgangur með námi í Smiðju er að nemar kynnist fjölbreyttum vinnuaðferðum þar sem reynir á samþættingu huga og handa, sköpunarkraft og fjölbreytt tjáningarform.
Smiðja 1 – 2

Smiðja 1 – 2 er 160 klukkustunda nám á 1. þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námskráin er í sjálfstæðu framhaldi af Smiðju 1 – 1 með vaxandi stíganda. Við stíganda milli námskránna Smiðja 1-1 og Smiðja 1-2 er tekið mið af evrópska hæfnirammanum um menntun, þrep eitt og þrep tvö. Námið er ætlað fólki sem vill kynnast fjölbreyttum vinnuaðferðum við að byggja upp verkkunnáttu, reynir á sköpunarkraft, samhæfingu og fjölbreytt tjáningarform þátttakenda.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Til að keyra smiðju námskrár þarf að liggja fyrir lýsing á verkefni sem tekið er fyrir. FA hefur þróað sniðmát fyrir fræðsluaðila til að skrifa lýsingar á verkefnum fyrir smiðju.
Námskráin hlaut vottun í desember 2022.

Dæmi um smiðjur;

Listir – Að vera og gera

Smiðja 1-2,2 – Færni á vinnumarkaði
Megintilgangur með námi í Smiðju 1 -2, 2 Færni á vinnumarkaði er að nemar kynnist og þjálfist til að sinna ákveðnum störfum. Námskráin er grunnur að námslýsingu sem tekst á við hvert starf sem þjálfa skal til samkvæmt hæfniþrepi námskrárinnar. Markmið með náminu er að nemar fái góða innsýn í, læri og þjálfist í vinnulagi við að leysa verkefni sem felast í því starfi sem námslýsing fæst við.
Smiðja 1-2,2 - Færni á vinnumarkaði

Smiðja 1 – 2, 2 Færni á vinnumarkaði er 180 klukkustunda nám á 1. þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námskráin er í sjálfstæðu framhaldi af Smiðju 1 – 1 með vaxandi stíganda. Við stíganda milli námskráa á hæfniþrepi 1 er tekið mið af evrópska hæfnirammanum um menntun, þrep eitt og þrep tvö. Námskráin er grunnur að námslýsingu sem tekst á við hvert starf sem þjálfa skal til samkvæmt hæfniþrepi námskrárinnar. Námið er ætlað fólki sem vill kynnast og hljóta þjálfun til að byggja upp verkkunnáttu, þjálfast fyrir ákveðna tegund starfs, efla samstarfshæfni og fjölbreytta færni til að sinna viðkomandi starfi. Námskráin hlaut vottun í ágúst 2024.

Námskrá á pdf

Til að keyra smiðju námskrár þarf að liggja fyrir lýsing á starfi sem þjálfað er fyrir.

Smiðja 2-1
Megintilgangur með námi í Smiðju er að nemar kynnist fjölbreyttum vinnuaðferðum þar sem reynir á samþættingu huga og handa, sköpunarkraft og fjölbreytt tjáningarform.
Smiðja 2-1

Smiðja 2 – 1 er 160 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námskráin er í beinum tengslum við Smiðjur á hæfniþrepi 1 með vaxandi stíganda. Við stíganda milli námskránna er tekið mið af hæfnirammanum um menntun, þrep eitt og þrep tvö. Námið er ætlað fólki sem vill kynnast fjölbreyttum vinnuaðferðum við að byggja upp verkkunnáttu, reynir á sköpunarkraft, samhæfingu og fjölbreytt tjáningarform þátttakenda.

Til að keyra smiðju námskrár þarf að liggja fyrir lýsing á verkefni sem tekið er fyrir. FA hefur þróað sniðmát fyrir fræðsluaðila til að skrifa lýsingar á verkefnum fyrir smiðju. Námskráin hlaut vottun í nóvember 2023.

Námskráin á pdf

Námskráin í námskrárgrunni

Námslýsingar fyrir smiðjur;

Grafísk hönnun

Leikskólastarf

Matur – frá hugmynd til framleiðslu (I)

MIG/MAG suða

Pinnasuða

Stafræn smiðja (FAB LAB)

Starf við umönnun

Starf í ferðaþjónustu

TIG suða

Sölu- markaðs- og rekstrarnám
Tilgangur námsins er að efla þekkingu og auka hæfni þeirra sem sinna, eða hafa hug á að sinna, sölustörfum, markaðsmálum eða að stofna til eigin reksturs.
Sölu- markaðs- og rekstrarnám

Sölu- markaðs- og rekstrarnám  er 440 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 22 framhaldsskólaeininga. Náminu er ætlað að efla þekkingu og auka hæfni þeirra sem sinna eða hafa hug á að sinna, sölustörfum, markaðsmálum eða stofna til eigin reksturs.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Sölu- og markaðsnám – Grunnur að árangri
Námið er á hæfniþrepi 2 og er ætlað fyrir fólk sem vill auka færni sína og þjálfast í sölu- og markaðssetningu vöru og/eða þjónustu.
Sölu- og markaðsnám - Grunnur að árangri

Námsleiðin Sölu- og markaðsnám – Grunnur að árangri, nýtir 11 námsþætti námskrár FA Sölu-, markaðs- og rekstrarfræði. Námið er alls 268 klukkustunda vinnuframlag nema.

Námið er fyrir fólk sem vill efla sig og styrkja færni sína í sölu- og markaðsfræði með það að markmiði að verða betur undirbúin til að takast á við þá þætti sem í slíkum störfum felast, allt frá sölutækni til rafrænnar markaðssetningar og áætlunargerðar. Námið er á hæfniþrepi 2 samkvæmt Hæfniramma um íslenska menntun.

Námsleiðin á pdf

Starf í íþróttahúsi
Markmið námsins er að tryggja að starfsfólk íþróttamannvirkja hafi þá hæfni sem þarf til að sinna skilgreindum viðfangsefnum í samræmi við starfaprófílinn.
Starf í íþróttahúsi

Námskráin Starf í íþróttahúsi er 200 klukkustundir og byggir á samnefndum starfaprófíl og eldri námskrá. Námskráin lýsir námi á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun og er ætlað þeim sem starfa eða hafa hug á að starfa við íþróttahús. Markmið námsins er að tryggja að þau sem ljúka því séu fær um að taka á móti og þjónusta fjölbreyttan hóp viðskiptavina. Geti sinnt eftirliti, baðvörslu ásamt aðstoð við börn og einstaklinga með sérþarfir.

Mikil áhersla er lögð á að þátttakendur í náminu öðlist hæfni í að vinna samkvæmt verklagi um öryggi og geti fylgt þeim kröfum sem settar eru fram samkvæmt lögum og reglum. Jafnframt er lögð áhersla á sjálfstæð og öguð vinnubrögð og að efla samvinnu- og samskiptafærni nema. Tilgangur námsins er að styrkja jákvæð viðhorf til starfsgreinarinnar, efla færni og faglega þekkingu til að takast á við helstu viðfangsefni og aukna ábyrgð í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi í starfi í íþróttahúsum.

Námskráin er unnin af SÍMEY, Símenntunarmiðstöð Eyjafjarða

Námskráin á pdf

Námskráin í námskrárgrunni

Starfsnám í vöruhúsi
Tilgangur námsins er að efla þekkingu og auka hæfni starfsfólks í vöruhúsum sem tekur á móti vörum og afgreiðir vörur ásamt því að fylgjast með vörulager.
Starfsnám í vöruhúsi

Starfsnám í vöruhúsi er 120 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 6 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem starfa eða hafa hug á að starfa í vöruhúsum við að taka á móti og afgreiða vörur ásamt því að fylgjast með vörulager.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Sterkari starfskraftur
Tilgangur námsins er að efla þekkingu og auka hæfni þeirra sem starfa eða hafa hug á að starfa við almenn skrifstofustörf og auka færni þeirra við upplýsingatækni.
Sterkari starfskraftur

Námskráin Sterkari starfskraftur lýsir 160 stunda námi á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Tilgangur námsins  er að efla þekkingu og auka hæfni þeirra sem starfa eða hafa huga á að starfa við almenn skrifstofustörf. Markmiðið er að auka þekkingu og leikni þátttakenda til að takast á við örar breytingar í atvinnulífinu samfara fjórðu iðnbyltingunni og auka færni sína í upplýsingatækni. Lögð áhersla á að efla frumkvæði og skapandi hugsun við lausn verkefna.

Námskráin í námskrárgrunni

Námslýsing á pdf

Stökkpallur
Markmið námsins er að auka starfshæfni námsmanna og gera þá meðvitaðri um eigin styrkleika.
Stökkpallur

Stökkpallur er 180 klukkustunda nám á 1. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 10 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem horfið hafa frá námi og/eða eru án atvinnu. Markmið námsins er að auka starfshæfni námsmanna og gera þá meðvitaðri um eigin styrkleika.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Sundlaugarvörður
Markmið námsins er að tryggja að starfsfólk sundstaða hafi þá hæfni sem þarf til að sinna skilgreindum viðfangsefnum í samræmi við starfaprófílinn.
Sundlaugarvörður

Námskráin Sundlaugarvörður er 200 klukkustundir og byggir á samnefndum starfaprófíl og eldri námskrá. Námskráin lýsir námi á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun og er ætlað þeim sem starfa eða hafa hug á að starfa við sundstaði. Markmið námsins er að tryggja að þau sem ljúka því séu fær um að þjónusta gesti sundstaða og tryggja öryggi þeirra og velferð ásamt því að halda sundstaðnum hreinum.

Lögð er áhersla á að þátttakendur í náminu öðlist hæfni í að vinna samkvæmt verklagi um öryggi ásamt því að geta fylgt þeim kröfum sem settar eru fram samkvæmt lögum og reglum. Jafnframt er lögð áhersla á sjálfstæð og öguð vinnubrögð og að efla samvinnu- og samskiptafærni nema. Tilgangur námsins er að styrkja jákvæð viðhorf námsmanna til starfsgreinarinnar, efla færni og faglega þekkingu til að takast á við helstu viðfangsefni og aukna ábyrgð í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi í starfi í sundlaugum.

Námskráin er unnin af SÍMEY, Símenntunarmiðstöð Eyjafjarða

Námskráin á pdf

Námskráin í námskrárgrunni

Tæknilæsi og tölvufærni: vinnuumhverfi samtímans
Markmið námskrárinnar er að auka tæknilæsi og tölvufærni námsmanna með það að leiðarljósi að efla hæfni einstaklinga til að takast á við breytingar og undirbúa þá þannig til að halda í við tækniframfarir í atvinnulífinu.
Tæknilæsi og tölvufærni: vinnuumhverfi samtímans

Tæknilæsi og tölvufærni: vinnuumhverfi samtímans 45 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun og skiptist í 6 námsþætti. Náminu er ætlað að ná til þeirra einstaklinga innan markhóps framhaldsfræðslu sem líklegir eru til að sitja eftir á vinnumarkaði sökum tækniframfara og breytinga á störfum sem þær hafa í för með sér. Námið er bæði bóklegt og verklegt. Námskrána á að vera hægt að laga að mismunandi vinnustöðum og starfsgreinum í takt við framfarir í tækni og stafrænu vinnuumhverfi.

Námskrá í námskrárgrunni

Námskráin er unnin af Framvegis, miðstöð símenntunar

Tækniþjónusta
Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfi við tækniþjónustu.
Tækniþjónusta

Tækniþjónusta er 140 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 7 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfi í fjölbreyttri tækniþjónustu við viðskiptavini og samstarfsfólk.

Námskráin byggir á starfaprófílnum „Starfsmaður í tækniþjónustu“, sem finna má hér

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Tölvugrunnur og sjálfsefling
Námið miðar einkum að tvennu, að námsfólk styrkist í grunnatriðum tölvunotkunar og eflist í samskiptahæfni ásamt því að byggja upp eigið sjálfstraust. Námsleiðin byggir á tveimur námsþáttum Menntastoða.
Tölvugrunnur og sjálfsefling

Námsleiðin Tölvugrunnur og sjálfsefling nýtir tvo námsþætti Menntastoða, alls 140 klukkustunda vinnuframlag nema og jafngildir 7 framhaldsskólaeiningum.

Námið er fyrir fólk sem vill styrkja sig og eflast í notkun tölvutækni annars vegar og auka á sjálfstraustið ásamt eigin samskiptahæfni. Námið er á hæfniþrepi tvö samkvæmt Hæfniramma um íslenska menntun.

Námsleiðin á pdf

Tölvuumsjón
Tilgangur námsins er að efla hæfni þeirra sem vinna við, eða hafa hug á að vinna við, tölvuviðgerðir og að þjónusta tölvukerfi.
Tölvuumsjón

Tölvuumsjón er 344 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 17 framhaldsskólaeininga. Náminu er ætlað að efla hæfni þeirra sem vinna við eða hafa hug á að vinna við tölvuviðgerðir og þjónusta tölvukerfi.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Uppleið – Nám byggt á hugrænni atferlismeðferð
Náminu er ætlað að ná til þeirra einstaklinga innan markhóps framhaldsfræðslu sem síst afla sér menntunar og greiða leið þeirra til áframhaldandi náms og virkni með hvatningu og sjálfstyrkingu að leiðarljósi.
Uppleið – Nám byggt á hugrænni atferlismeðferð

Uppleið – Nám byggt á hugrænni atferlismeðferð er 40 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið er ætlað þeim sem vilja læra að takast á við hamlandi líðan með því að nýta sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) í daglegu lífi.

Námskráin á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Námskráin er þróuð af Framvegis, miðstöð símenntunar.

Upplýsingatækni – þjónusta og miðlun
Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfi við upplýsingatækni eins og því er lýst í starfaprófíl.
Upplýsingatækni – þjónusta og miðlun

Upplýsingatækni – þjónusta og miðlun er 170 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 8 framhaldsskólaeininga.  Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfi við upplýsingatækni – þjónustu og miðlun og umsýslu/aðlögun gagna.

Námskráin byggir á starfaprófílnum „Starf í upplýsingatækni“, sem finna má hér

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Námslýsing

Velferðatækni
Tilgangur námsins er að efla þekkingu og auka hæfni þeirra sem starfa eða hafa hug á að starfa við velferðarþjónustu.
Velferðatækni

Velferðatækni er 40 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið er ætlað þeim sem starfa eða hafa hug á að starfa við velferðarþjónustu og vilja öðlast aukna þekkingu og leikni í að takast á við tækniþróun í geiranum.

Námskrá í námskrárgrunni

Námskráin er unnin af Framvegis, miðstöð símenntunar

Verkfærni  í framleiðslu
Námið er ætlað þeim sem starfa eða hafa hug á að starfa við málm- og tæknigreinar.
Verkfærni  í framleiðslu

Verkfærni  í framleiðslu er 220 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 11 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem starfa eða hafa hug á að starfa á sviði framleiðslu í málm- og tæknigreinum og styrkja þá til frekara náms.

Námskrá á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Vöruflutningaskólinn
Tilgangur námsins er að efla starfsmenn flutningafyrirtækja í starfi með því að efla sjálfstraust og styrkja faglega hæfni þeirra.
Vöruflutningaskólinn

Vöruflutningaskólinn er 339 kennslustunda nám sem mögulegt er að meta til 23 eininga. Námið er ætlað þeim sem starfa hjá flutningafyrirtækjum og vilja bæði styrkja faglega hæfni sína og efla sjálfstraust.

Námskrá á pdf

Þjónustuliðar – grunnnám
Tilgangur námsins er að auðvelda námsmönnum að takast á við verkefni sem þeim eru falin í starfi og að auðvelda þeim að flytja sig milli starfa með litlum fyrirvara.
Þjónustuliðar – grunnnám

Þjónustuliðar – grunnnám er 60 kennslustunda nám sem mögulegt er að meta til 5 eininga. Námið er ætlað þeim sem starfa við ræstingar, hreingerningar eða sótthreinsun í býtibúrum, borðstofum, kaffistofum, matsölum eða þvottahúsum.

Námskrá á pdf

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar