ÞEGAR REYNSLA FÆR VÆGI OG HÆFNI VERÐUR SÝNILEG
- samstarf um raunfærnimat
Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins verður haldinn þann 12. nóvember n.k. á Grand hótel Reykjavík og er haldinn í samstarfi við NLL – Norrænt samstarf um símenntun og verður einnig streymt. Fundurinn hefst kl. 10:30 og stendur til 13:45, boðið verður uppá léttar veitingar.
Þemað er raunfærnimat og gildi þess fyrir einstakling og samfélag. Ætlunin er að draga fram fjölbreyttar leiðir raunfærnimats innan menntakerfis og á vinnumarkaði hér á landi og erlendis. Rætt verður hvernig efla má samstarf og tryggja varanleika og gæði raunfærnimats í víðu samhengi. Einnig verða kynningar á innlendum verkefnum og umræður í pallborði um gildi raunfærnimats, áskoranir og sóknarfæri.
Gestafyrirlesarar verða Ernesto Villalba, sérfræðingur í raunfærnimati hjá CEDEFOP og Marcus Karlsson, sérfræðingur hjá Landsskrifstofu fagháskóla í Svíþjóð.
