Þjálfun í raunfærnimati – fjarnámskeið – ágúst 2026

Fjarnámskeiðið er ætlað matsaðilum, verkefnastjórum og ráðgjöfum sem koma að raunfærnimatsverkefnum. Einnig eru hagsmunaaðilar sem vilja kynna sér framkvæmd raunfærnimats velkomin. 

Um framkvæmd

Námskeiðið er fjarnámskeið og framkvæmd verður á Teams. Þátttakendur fá send fundarboð ásamt Teams-hlekkjum mánudaginn 10. ágúst. Einnig gögn sem þarf að hafa við höndina á námskeiðinu.

Námskeiðið byggir á virkri þátttöku þeirra sem sækja það, bæði með hópavinnu og með spurningum og samtali. Við tökum 10 mínútna hlé einu sinni á klukkustund en lengra hlé milli 11:30 og 12:00.

Ekki er í boði að sækja námskeiðið á staðnum.

Aðstaða þátttakanda

Óskað er eftir því að þátttakendur skapi sé aðstöðu sem gerir þeim kleift að vera í mynd og vera þátttakendur í hópavinnu.

DagurHefstLok
Þriðjudagur 11. ágúst9:0013:00
Miðvikudagur 12. ágúst9:0013:00
Fimmtudagur 13. ágúst9:0013:00
Námskeiðslýsing

Tilgangur námskeiðanna er að kynna fyrir þátttakendum hugtakið raunfærnimat og þjálfa þau í að vinna við raunfærnimat samkvæmt því ferli sem þróað hefur verið hér á landi.  Námskeiðið er liður í að formfesta raunfærnimatsferlið, stuðla að gæðum og mæta síauknum þörfum.

Námskeiðið er 12 klukkustundir.


Leiðir á námskeiðinu

Farið er yfir skilgreiningu á raunfærnimati, reglugerðir, lög og framkvæmd. Farið verður yfir það raunfærnimatsferli sem þróað hefur verið hér á landi og greiningardæmi tekin til glöggvunar á framkvæmd þess.  Lögð er áhersla á almenna virkni þátttakenda í gegnum umræður og æfingar í hópum þar sem þátttakendur fá tækifæri til að byggja upp færni í að meta raunfærni á uppbyggilegan og réttmætan hátt og finna lausnir á álitamálum.

Reglugerð nr. 1163

Þann 30. október 2011 kom út reglugerð vegna framhaldsfræðslulaga og þar segir m.a. „ Sérfræðingar sem annast raunfærnimat skulu hafa aflað sér fullnægjandi þekkingar og þjálfunar í mati á raunfærni samkvæmt kröfum mennta- og menningarmálaráðuneytisins“.

Dagskrá

Með fyrirvara um breytingar

Þriðjudagur 11. ágúst 2026

Kl. 08:45Opnað inn – tengingar og tæknimál
Kl. 09:00 – 09:20Velkomin – Kynningar og praktík
Kl. 09:20 – 10:00Raunfærni – Hugmyndafræði og skilgreining – Hlutverk FA
Kl. 10:10 – 10:50Framkvæmd – meginlínur – Tenging við reglugerð og lög
Kl. 11:00 – 11:30Verkefnavinna – þín raunfærni – hvernig hefur hún byggst upp?
Kl. 11:30 – 12:00Hádegishlé
Kl. 12:00 – 12:40Árangur og tölfræði
Kl. 12:40 – 13:00Yfirferð yfir daginn – dagurinn á morgun

Miðvikudagur 12. ágúst 2026

Kl. 08:45Opnað inn – tengingar og tæknimál
Kl. 09:00 – 09:30Framkvæmd – Kerfið og fjármögnun
Kl. 09:30 – 10:00Verkefnavinna – Hvar sjáið þið tækifæri?
Kl. 10:10 – 10:40Framkvæmd – Matsaðilar – tæki og tól
Kl. 10:40 – 11:00Verkefnavinna – Aðalatriði og minna mikilvæg atriði  
Kl. 11:10 – 11:40Framkvæmd – Matssamtöl
Kl: 11:40 – 12:10Hádegishlé
Kl. 12:10 – 12:40Verkefnavinna –
Kl. 12:40 – 13:00Yfirferð yfir daginn – dagurinn á morgun

Fimmtudagur 13. ágúst 2026

Kl. 08:45Opnað inn – tengingar og tæknimál
Kl. 09:00 – 09:20Verkefnastýring – Fjármögnun verkefna
Kl. 09:20 – 10:00Ráðgjöf – Hluti af raunfærnimatsferlinu  
Kl. 10:10 – 10:50Verkefnavinna – Hópavinna – Þátttakendur í raunfærnimati
Kl. 11:00 – 11:30Kynningar úr hópavinnu
Kl. 11:30 – 12:00Hádegishlé
Kl. 12:00 – 12:40Spáð í framtíðina
Kl. 12:40 – 13:00Hvað stendur eftir? – námskeiðsmat
Leiðbeinendur

Frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins eru leiðbeinendur á námskeiðinu Haukur Harðarson og Fjóla María Lárusdóttir.

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar