Ársskýrsla NLL – Norræns samstarfs um símenntun 2025 komin út

Árið 2025 markaði tímamót hjá NLL . Árið einkenndist af farsælli endurskipulagningu og mótun framtíðarsýnar til ársins 2030 í takt við áherslur Norrænu ráðherranefndarinnar. Í skýrslunni er sagt frá helstu viðburðum og verkefnum ársins á vettvangi símenntunar á Norðurlöndum. Þátttakendur frá Íslandi voru duglegir að sækja viðburði á vegum NLL. Vert er að benda á að á heimasíðu NLL má lesa fjölda greina sem þýddar hafa verið á íslensku.

Stiklað á stóru:

  • Ný net: Fjögur ný þverfagleg net voru mynduð  um stafræna þátttöku innflytjenda, færni í atvinnulífinu og málefni ungs fólks utan vinnumarkaðar og skóla (NEET).
  • Mikil þátttaka: Yfir 2.400 manns tóku þátt í 79 viðburðum og fundum á vegum NLL.
  • Stefnumótun: Gefin voru út gögn til stuðnings fyrir ákvörðunartöku, þar á meðal um örvottanir (micro-credentials), gervigreind og sjálfbærni.
  • Stafræn miðlun: Nýr vefur (nll.org) var opnaður og samskiptamiðlar efldir til að miðla þekkingu um símenntun á Norðurlöndum

Nálgast má ársskýrsluna HÉR

Norrænt samstarf um símenntun (NLL)  styður við þverfaglegt samstarf, mótun stefnu og verklags í tengslum við símenntun á öllum Norðurlöndum

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar