Í nýrri grein í Gátt, veftímariti framhaldsfræðslunnar, fjallar Steinunn Björk Jónatansdóttir, náms- og starfsráðgjafi og deildastjóri hjá MSS, um vel heppnað verkefni sem miðaði að því að ná til og efla konur af arabískum uppruna sem eru innflytjendur hér á landi.
Markmið þessa verkefnis var að bjóða uppá námskeið sem væri valdeflandi rými fyrir konur þar sem áherslan var meðal annars á sjálfstyrkingu, starfsfræðslu og heilsueflandi fræðslu þátttakendum til hagsbóta. Í verkefninu tóku þátt konur með fjölbreyttan bakgrunn. Sumar höfðu þegar einhverja reynslu af íslenskum vinnumarkaði, aðrar voru að stíga sín fyrstu skref en engin þeirra var í föstu starfi þegar þær komu á námskeiðið. Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við félagsþjónustu Reykjanesbæjar og Vinnumálastofnun.
Lesið um þetta á vef Gáttar:
