Les- og skrifþjónn
Les- og skrifþjónninn ViTal
![]() |
ViTal les af tölvuskjá upphátt á íslensku. ViTal kemur sér vel fyrir þau sem stríða við mikla lesörðugleika eins og lesblindu. Nokkrir fræðslusjóðir styrkja kaup á hjálpartækjum. Lesþjónn, leiðréttingarforrit í tölvu, skanni og forrit sem skannar íslensku stafina eru á meðal hjálpartækja sem fræðslusjóðir geta styrkt. Leitaðu frekari upplýsinga hjá fræðslusjóði þínum. Hlustaðu á lesþjóninn ViTal segja frá sjálfum sér. | |
|
DVD-diskur
|
Hlustaðu á lesþjóninn ViTal segja frá efni á DVD-diskinum. Á DVD-diskinum eru kynntar lausnir fyrir fólk sem á við lestrar- og riterfiðleika að stríða. Mörg þeirra tækja og tóla, sem þar er lýst, krefjast tiltölulega lítils tilkostnaðar. Ýmis úrræði geta falist í því að vinnuferlar og kringumstæður eru aðlagaðar þörfum þess starfsfólks sem þarf á stuðningi að halda. Þá er fróðlegt að sjá hvernig einstaklingar, við nánari umhugsun og einbeitingu, hafa fundið nýja styrkleika sem þeir geta nýtt sér til þess að vega upp á móti þeim örðugleikum sem þeir þurfa að kljást við í sambandi við lestur og ritun. Netútgáfa af diskinum á vef Tölvumiðstöðvar fatlaðra. | |
|
|
. |
Lesþjóninn er hægt að prófa hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins á annarri hæð í Skeifunni 8, sími 599 1400.
Vefsíða sölufyrirtækis ViTal í Svíþjóð.
|
Leit
Toppmynd

























