Beint į leišarkerfi vefsins
Aftur į forsķšu

Fréttir frį samstarfsašilum

22.2.2008

Jaršlagnatękni

Nám í jarðlagnatækni er ætlað verkamönnum, flokksstjórum, verkstjórum og verktökum, sem vinna við nýlagnir, endurbætur, viðhald og viðgerðir rafstrengja, vatnslagna, hitalagna, fjarskiptalagna og fráveitna í jörð.

Ķ samráði við verktaka var ákveðið að hefja jarðlagnatækninámið 3. desember 2007 og kenna aðra hverja viku frá kl. 8:30 til 17:10. Námið er 300 kennslustundir og stóð yfir í 6 vikur.

Fulltrúar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra voru viðstaddir við formleg námslok og notuðu tækifærið til þess að afhenda þátttakendum í jarðlagnatæknanáminu skjöl þar sem fram kom að Fjölbrautaskólinn metur námið til allt að 24 eininga.23 kenndu á námskeiðinu. 8 af þeim eru menntaðir kennarar aðrir eru sérfræðingar á sínu verksviði. 4 kennaranna voru af suðvestur horninu. 2 þeirra komu til Skagafjarðar en hinir 2 kenndu í gegnum fjarfundabúnað. 2 kennarar komu frá Akureyri. Aðrir kennarar komu úr Skagafirði og Húnavatnssýslum. Skagafjarðarveitur, Verkfræðistofan Stoð og RARIK lögðu fúslega til sérfræðinga sem kenndu verðandi jarðlagnatæknum. Það létti öllum róðurinn að kennarar, sem hafa kennt á jarðlagnatækninámskeiðum fyrir Mími, voru fúsir til að miðla upplýsingum og kennsluefni.Námskeiðið var metið þannig að settir voru saman tveir rýnihópar sem ræddu nokkur fyrirfram ákveðin málefni tengd námskeiðinu s.s. aðbúnað, skipulag og umsjón, innihald námsins, hvaða námsþættir væru gagnlegastir og hvort einhverjum þáttum mætti sleppa einnig ræddu þeir framlag leiðbeinenda, námsgögn og tímalengd. Hvor hópur um sig valdi ritara sem skráði niðurstöður. Fyrir utan samræður í rýnihópi voru lagðar ellefu spurningar fyrir hvern og einn námsmann.Niðurstöður rýnihópanna voru mjög áþekkar.

·         Aðbúnaður, kennslustofur og kaffi til fyrirmyndar og mjög heimilislegt.

·         Skipulag mjög gott.

·         Verklegir þættir og tölvunám gagnlegast og bóklegt ágætt með.

·         Leiðbeinendur stóðu sig allir vel en mis stirðir í byrjun og komu verkefnunum vel frá sér.·         Námsgögn góð og koma til með að nýtast í framtíðinni.

·         Tíminn góður bæði hvað varðar daglega viðveru og líka að vera aðra hverja viku.

Niðurstöðurnar úr einstaklingsmatinu sýndu líkt og niðurstöður rýnihópanna, mikla ánægju með námskeiðið og töldu að það ætti eftir að gagnast þeim í framtíðinni. Í framhaldi vilja þátttakendur helst sjá meiri tölvukennslu, ensku, mælingar og fleira sem lýtur að verklegumþáttum.

   
 
   

   
ĮhugavertGátt
 
 
   
Log um framhaldsfraedslu 
 
   
Įskoranir í raunf. kassi
 
 
Menntatorg
 
   
Mælistikan  
   
ĶslFyrirAlla   
   
Bókasafn   

Norręnt tengslanet um fulloršinsfręšslu
Value of Work - VOW

Žś ert hér:

Żmis gögn » Fréttir frį samstarfsašilum

Toppmynd

Auka gęši ķ fulloršinsfręšslu og starfsfręšslu į vinnumarkaši

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Information in English