Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húsakynni

Í húsakynnunum eru einkum fimm þættir sem skipta þig máli. Þeir skipta þig mismiklu máli eftir því hvað þú áformar í framsetningu og kennsluaðferðum. 
  1. Rými: Þar skiptir máli stærð svæðisins sem þú getur athafnað þig á. Ef þú áformar t.d. að námsmenn vinni í hópum verður stærð og skipulag húsakynna á upptöku- og móttökustað að gefa tilefni til þess.
 
  1. Birta: Dagsbirta getur ruglað stillingu vefmyndavélarinnar og speglast í sjónvarpsskjánum. Ofanljósin geta einnig speglast í hlutum sem þú sýnir í tækjunum sem fylgja fjarfundabúnaðinum. Ofanljósin gefa jafna birtu sem dregur úr skuggum sem skerpa útlit hluta með ójafnt yfirborð. Of mikil birta og ljós geta dregið úr skýrleika mynda sem varpað er á vegg. Þess vegna þarftu að vita hvernig þú stjórnar dagsbirtu og ofanljósum. Í sérstökum tilvikum er sérlýsing nauðsynleg.
 
  1. Hljóð: Hljómburður varðar bæði upptöku hljóðnema og áheyrn úr hátölurum. Umferð utan- og innanhúss getur truflað námsmenn og framsetningu þína. Viftur í grennd við hljóðnema geta truflað áheyrendur í móttökustöð.
 
  1. Húsgögn: Ef þú sækist t.d. eftir sérstakri uppröðun borða og stóla. Eða ef þú þarft að ýta þeim til hliðar af einhverjum ástæðu.
 
  1. Búnað: Kynntu þér staðsetningu tækja sem taka upp hljóð og mynd. Einnig staðsetningu kennslutækjanna sem þú þarft á að halda. Staðsetning þeirra setja því mörk hvað þú getur hreyft þig og hvar þú getur sýnt t.d. hluti sem þú tekur með þér. Þú þarft að kynna þér fjarstýringar og önnur stjórntæki búnaðarins.
  
Norrænt tengslanet um fullorðinsfræðslu
Value of Work - VOW

Þú ert hér:

Ýmis gögn » Búnaður » Húsakynni

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English