Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Stjórn Fræðslusjóðs

Ráðherra skipar Fræðslusjóði níu manna stjórn til fjögurra ára í senn. Formaður er skipaður án tilnefningar, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins tilnefna tvo fulltrúa hvort, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Félag íslenskra framhaldsskóla tilnefna einn fulltrúa hvort, fjármálaráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefna einn fulltrúa sameiginlega og félags- og tryggingamálaráðherra einn. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.

Stjórn Fræðslusjóðs setur sér starfs- og úthlutunarreglur sem ráðherra staðfestir. Í þeim skal koma fram hvernig meðferð umsókna er háttað og almenn skilyrði fyrir veitingu framlaga úr sjóðnum.

Fræðslusjóður er þannig skipaður:

Aðalmenn:
Jón Torfi Jónasson, formaður, skipaður án tilnefningar
Atli Lýðsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
Halldór Grönvold, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
Garðar Hilmarsson, tilnefndur af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
Olga Lísa Garðarsdóttir, tilnefnd af Félagi íslenskra framhaldsskóla
Anna Kristín Gunnarsdóttir, tilnefnd af velferðarráðneyti
Guðfinna Harðardóttir, tilnefnd sameiginlega af fjármálaráðuneyti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Guðrún Eyjólfsdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
Álfheiður Mjöll Sívertsen, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins.

Varamenn:
Kristín Njálsdóttir, varaformaður, skipuð án tilnefningar
Ástríður Valbjörnsdóttir, tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands
Guðmundur Gunnarsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
Kristín Á. Guðmundsdóttir, tilnefnd af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
Þór Pálsson, tilnefndur af Félagi íslenskra framhaldsskóla
Bjarnheiður Gautadóttir, tilnefnd af velferðarráðneyti
Guðmundur H. Guðmundsson, tilnefndur sameiginlega af fjármálaráðuneyti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Friðrik Friðriksson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins


Þú ert hér:

Um FA » Fræðslusjóður » Stjórn Fræðslusjóðs

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English