Ársfundur08
|
Erlendir fyrirlesarar á ársfundi FA 20. nóvember 2008 |
||
![]() |
Ingegerd Green er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og vinnur aðallega fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í Svíþjóð. Megin verkefni hennar felast í þróun þekkingar og færni starfsmanna með það fyrir augum að auka samkeppnishæfni fyrirtækjanna. Ingegerd Green á sæti í stjórnum ýmissa fyrirtækja af mismunandi stærð og innan ólíkra atvinnugreina. Ennfremur situr hún í stjórn Forum för småföretagsforskning, sem vinnur að rannsóknum á smáfyrirtækjum. Hún á einnig sæti í stjórn sænsku rannsóknarstofnunarinnar Institutet för Tillväxtpolitiska studier, sem rannsakar þróun hagvaxtar. |
|
|
Að mati Ingegerd Green er brýnt að skilgreina og stuðla að skilningi á hvað felst í færni og hvernig unnt er að þróa hana til þess að skapa ný kerfi og svið til þess að mæta þörfum atvinnulífsins, samfélagsins og einstaklinganna fyrir færniþróun. Ingegerd er ættuð frá Gnojsö sem er svæði þekkt fyrir nýsköpun og grósku. Hún er kennaramenntuð og nam við Gautaborgarháskóla 1981-1987. Hún hefur frá blautu barnsbeini unnið við rekstur fyrirtækja, fyrst 11 ára gömul í fyrirtæki fjölskyldunnar í Gnojsö. Hún var fulltrúi Svíþjóðar í Þankabanka NVL um færni til framtíðar og höfundur skýrslunnar sem Þankabankinn gaf út. Hægt er að fá eintak af skýrslunni hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og á heimasíðu NVL www.nordvux.net. |
||
![]() |
Dr. David L. Blustein, Boston Dr. David L. Blustein, doktor í ráðgjafarsálarfræði, hefur mikinn áhuga á starfsferli fólks með stutta skólagöngu. Hann er gagnrýninn á "blindu" annarra fræðimanna á þennan hóp fólks. Árið 2006 kom út bók eftir hann um þetta efni sem ber heitið The psychology of working: A new perspective for career development, counseling, and public policy. Þessi bók hefur fengið mikið lof vestanhafs. Í bókinni beinir Dr. Blustein sjónum sínum að þeim sem ekki hafa fengið tækifæri til að upplifa starfsferil sinn sem ánægjulegan eða gefandi. |
|
|
Að mati Blustein hafa vinnusálfræðingar og ráðgjafar hingað til aðallega lagt áherslu á að þróa náms- og starfsráðgjöf útfrá þeim forsendum að valmöguleikar og vilji þeirra sem nýta sér ráðgjöfina séu fyrir hendi, þótt raunin sé sú að það sé ekki dæmigert fyrir hinn almenna starfsmann. Í augum margra er vinnan lífsspursmál. Dr. Blustein dregur fram og skoðar nánar gildi vinnunnar í lífi fólks, sérstaklega þeirra sem standa verr að vígi á vinnumarkaðnum og kannar hvernig vekja megi áhuga þeirra á því að auka möguleika sína. Bókin er m.a. skrifuð í því skyni að hvetja þá sem geta haft áhrif á stefnumótun til að finna leiðir til að jafna tækifæri og möguleika fólks til náms og starfa. Hann fjallar m.a. um félagslegar hindranir og störf (fjölmenningu, stéttarskiptingu og minnihlutahópa) og hlutverk vinnunnar í að veita fólki aðgengi að öryggi og völdum, félagslegum tengslum og staðfestu. Dr. Blustein starfar sem prófessor við ráðgjafardeild Háskólans í Boston. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín (Early career scientist-practitioner award og John Holland award for outstanding achievement in personality and career research) og haldið fyrirlestra víða um heim. Heimasíða Blustein http://www2.bc.edu/~blusteid/. |
||
Leit
Toppmynd






















