Stiklur: Almenn lýsing
|
|
Stiklur eru fjölþætt kennslufræðinámskeið sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins býður samstarfsaðilum sínum í þeirri viðleitni að efla gæði í fullorðinsfræðslu. |
||
|
|
Námskeiðin eru hugsuð fyrir breiðan hóp fólks sem sinnir fullorðinsfræðslu og vill skerpa gæðin í fræðslustarfinu. Þau henta kennurum, leiðbeinendum, náms- og starfsráðgjöfum, starfsmönnum og stjórnendum við símenntunarstofnanir. Einnig geta þau hentað þeim sem sinna almennri mannauðsstjórnun innan fyrirtækja og stofnana og öðrum sem vinna að almennri uppbyggingu og eflingu fullorðinna. RR |
||
|
|
Megináhersla er lögð á eftirfarandi þætti á námskeiðunum: |
||
|
|
|
||
| Tilhögun: |
|||
|
|
Stiklur eru skipulagðar sem fjölmargir mismunandi námskeiðsþættir (módúlar) sem eru 5 klst. hver (7 kennslustundir). Hægt er að halda hvern námskeiðsþátt fyrir sig en einnig að setja þá saman á mismunandi hátt eftir þörfum og aðstæðum hverju sinni. Saman mynda þeir eina heild þar sem "stiklað" er á lykilatriðum í árangursríku fræðslustarfi með fullorðnum. Auk þess eru í boði sérsniðin námskeið og fræðslufundir í tengslum við námsskrár FA.
|
Þú ert hér:
KennslufræðiLeit
Toppmynd














