Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

29.6.2010

Fundur þriðjudaginn 08.06

Samningur við VMST um námsráðgjöf: Sagt frá því að samningur FA og fræðsluaðila (símenntunarmiðstöðvar og IÐAN fræðslusetur) við VMST um námsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur sé að renna út. Nýr samningur liggur ekki fyrir en fulltrúi VMST segir að áhugi sé fyrir áframhaldandi samstarfi ráðgjafanna. Verkefni þetta hefur gengið vel, reyndar misvel eftir landshlutum. Eitthvað hefur borið á ósamræmi við meðhöndlun mála og mikilvægt að samræma reglur fyrir ráðgjafana. Fram kom fjöldi viðtala hjá ráðgjöfum símenntunarmiðstöðvanna á tímabilinu jan-mars 2010 hafi verið rúmlega 2.850 og þar af hafi viðtöl atvinnuleitenda verið um 64% af öllum viðtölum, voru 47%rið 2009 voru viðtöl atvinnuleitenda um 47% allra viðtala.

Staðan á vinnumarkaði: Gert er ráð fyrir því að atvinnuleysi fari niður fyrir 8,5% í maí í samanburði við 9% í apríl og 9,3% í mars. Spár VMST gerðu ráð fyrir að atvinnuleysi í maí yrði 8,7%. Þessi lækkun á atvinnuleysisskrá stafar m.a. vegna þess að ungt fólk sem er á milli anna í skóla á nú ekki atvinnuleysisbótarétt. Þá spáðu menn ráð fyrir minni umsvifum í ferðaþjónustu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli en það hefur ekki gengið eftir.

Í lok maí var fjöldi atvinnulausra um 14.900 á meðan þessi tala var tæp 16 þúsund í lok apríl en hæst fór hún í 16.574 í lok febrúar. Mun hraðar hefur dregið úr atvinnuleysi meðal karla en kvenna og þá hefur dregið hraðar úr atvinnuleysi á landsbyggðinni heldur en höfuðborgarsvæðinu. Þegar atvinnuleysi er skoðað eftir atvinnugreinum má sjá að dregið hefur úr skráningum síðustu tvo mánuði í öllum greinum nema fiskveiðum og fræðslustarfsemi. Atvinnuleysi í mannvirkjagerð var um 20% þegar það var hæst en er um 17% í dag.

Innritun í framhaldsskólana: Almennt er staðan sú að framhaldsskólarnir geta tekið við þeim fjölda sem þeim ber en vandamálið er margir vilja fara í sömu skólana.

Framhaldsfræðslulögin: Farið yfir næstu skref í sambandi við innleiðingu laganna um framhaldsfræðslu. Innleiðingarferlið er hafið af hálfu ráðuneytisins og hefur nú þegar verið haldinn fundur með formönnum Leikn og Kvasis og þá er fyrirhugaður fundur með FA um rekstarsamning í vikunni. Innan MRN hafa nú verið settir í gang fjórir vinnuhópar sem munu undirbúa innleiðingu laganna en þeir eru þessir: Þrepaskipting og vottun námsskráa, Viðurkenning fræðsluaðila, Raunfærnimat og Mat og eftirlit með gæðum.

Starfið í sumar: Farið í stuttu máli yfir starfsemi VMST og Mímis í sumar. VMST ætli að setja kraft í vinnumiðlunarviðtöl í sumar og hvetja einstaklinga í atvinnuleit til að fara í sjálfboðaliðastörf bæði hjá Rauða krossinum og ÍSÍ. Engin námskeið verði hjá Mími-símenntun í júlí en síðustu námskeiðin klárast í lok júní. Fyrstu námskeiðin hjá Mími eftir sumarfrí hefjast síðan um miðjan ágúst. Rauði krossinn hefur fengið aukafjárveitingu til að halda áfram með félagsvinaverkefnið. Sami verkefnastjóri mun halda áfram með verkefnið a.m.k. fram að áramótum og setja í gang nýja hópa atvinnuleitenda.

Önnur mál: Styrkir Starfsmenntaráðs: Sagt frá því að Starfsmenntaráð hafi um daginn auglýst eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu. Úr starfsemi FA: Sagt frá kynningarfundi um starfsemi FA fyrir opinbera aðila og ráðstefnu um hvatningu til náms sem fór fram í Kaupmannahöfn.  

Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English