Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

28.6.2010

Fundur þriðjudaginn 11.05

Breytingar hjá FA: Sagt frá aðkomu BSRB, fjármálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Í kjölfar þessara breytinga verður lögð áhersla á að skerpa á þáttum í starfsemi félagsins. Forsendur fyrir aðkomu nýrra aðila inn í samstarfsnet Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins eru þær að það komi fjármunir með nýjum aðilum inn í starfsemina. Unnið er að nánari útfærslu á málum í sambandi við fræðslusjóð sem mun sjá um útdeilingu fjármuna til fræðsluaðila.

Áætlanir gera ráð fyrir 5 ára rammasamningi við FA. Þessu innleiðingarferli verður stjórnað af mennta- og menningarmálaráðuneytinu í nánu samstarfi við framkvæmdaraðila í fullorðinsfræðslu (Leikn og Kvasis).

Ungt fólk til athafna Þegar verkefnið fór í gang hjá VMST þóttu markmið stofnunarinnar vera mjög háleit, þ.e. að koma öllum ungmennum á aldrinum 18-25 ára sem höfðu verið án atvinnu lengur en í þrjá mánuði í virkni fyrir 1. apríl 2010. U.þ.b. 1.800 ungmenni á þessum aldri tóku þátt í úrræðum VMST. Þá hefur atvinnuleysistryggingarsjóður að auki ákveðið að leggja til 250 milljónir til að skapa rúmlega 850 ný störf fyrir námsmenn og atvinnuleitendur. Átakið „Ungt fólk til athafna" mun standa út árið 2010.

Vinnustaðanám: Sagt frá því að reglugerð um svokallað vinnustaðanám í kjölfar náms í vottuðum námsleiðum FA sé ennþá óskrifuð en huga þarf að mörgum þáttum við þessa framkvæmd eins og t.d. tryggingarmálin. Fyrsti hópurinn (Færni í ferðaþjónustu I og II) sem fór í þetta nám hjá Mími-símenntun er nú langt kominn í vinnustaðanáminu og hafa viðbrögð verið mjög góð, jafnt frá fyrirtækjunum sjálfum og ekki síst nemendum.

Hjá Mími-símenntun hefur brottfall nemenda í vottuðum námsleiðum á þessu ári verið skoðað. Þar hefur komið í ljós að brottfall hjá íslenskum nemendum sem hafa komið í gegnum átaksverkefnið „Ungt fólk til athafna" hjá VMST hefur verið um 40% á meðan brotfall útlendinga í námsleiðum Mímis er innan við 10%.

Sagt frá vinnufundi/þjóðfundi sem ASÍ hélt um daginn um málefni atvinnuleitenda en þar var verið að skoða núverandi löggjöf um atvinnuleysistryggingar, vinnumarkaðsaðgerðir, framfærslu o.fl. Þar kom m.a. fram að fólki finnst núverandi kerfi um atvinnuleysistryggingar ekki nægilega sveigjanlegt. Fram koma að mikilvægt sé að endurskoða lögin m.t.t. virkni því fólk er allt of oft að rekast á hindranir. Þegar lög þessi voru skrifuð árin 2005-2006 var allt annað ástand á íslenskum vinnumarkaði.

Raunfærnimat: Farið yfir hvernig þeim einstaklingum sem hafa farið í raunfærnimat á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs hefur gengið að ljúka námi í sinni iðngrein. U.þ.b. 30% hafi nú þegar lokið sveinsprófi, 32% séu í námi en 38% séu aftur á móti stopp, í bið eða hættir námi. Það er ljóst að tækifærum fullorðinna inni í framhaldsskólunum hefur fækkað síðustu misserin og þau hjá IÐUNNI fræðslusetri hafa vaxandi áhyggjur af þessu. Þá er einnig áberandi hversu nemendum á landsbyggðinni gengur illa að klára nám sitt í samanburði við nemendur á höfuðborgarsvæðinu. Þar spilar inn í að framhaldsskólar á landsbyggðinni hafa ekki sama námsframboð og er í boði í þéttbýlinu.

Mentoraverkefni: Verkefnið „Félagsvinir atvinnuleitanda"eins það heitir hefur gengið mjög vel en fyrstu pörin eru nú að klára verkefnið. Tekist hefur að virkja mjög félagslega veika einstaklinga sem hefði að öllu jöfnu ekki tekist að virkja. VIRK starfsendurhæfingarsjóður hefur einnig komið að þessu verkefni með ráðgjöf. Unnið að því fá fjármuni til að geta metið árangurinn af verkefninu.

Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English