Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

19.5.2010

Fundur þriðjudaginn 20. apríl

Staðan á vinnumarkaði: Atvinnuleysi í febrúar og mars var um 9,3%. Spár gera ráð fyrir lækkandi atvinnuleysi í sumar og það verði um 7,5% í september. Dregið hefur úr skráningum hjá þeim einstaklingum sem hafa meiri menntun á meðan skráningar aukast hjá verkafólki og starfsfólki í þjónustu- og afgreiðslustörfum. Heldur hefur dregið úr skráningum í opinbera geiranum  eftir talsverða aukningu þar síðustu mánuði. Umtalsverð hreyfing hefur verið á atvinnuleysisskránni á milli mánaða, þ.e. talsvert um nýskráningar og afskráningar. Í mars voru nýskráningar u.þ.b. 1.700 á meðan afskráningar í mars voru um 1.600. Um 55-60% af þeim sem hafa verið afskráðir hafa fengið vinnu og er töluverð hreyfing á vinnumarkaðnum í dag.

Raunfærnimat: Sagt frá því að tölfræði úr starfi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sé nú aðgengileg á vef FA. Þar er að finna tölur úr: náms- og starfsráðgjöf, vottuðum námsleiðum og raunfærnimati. Umræður verða um þann  góða árangur sem hefur orðið í raunfærnimatinu á síðustu árum en margir horfa til þeirra hluta sem Íslendingar hafa verið að gera þar. Ljóst þykir að niðurskurður hjá hinu opinbera muni bitna á þeim sem koma úr raunfærnimati og ætla sér í framhaldsskólana þar sem nemendur í grunnskóla eru forgangshópur.

Námsráðgjöf á vefnum: Sagt frá fundi með erlendum náms- og starfsráðgjöfum hjá menntamálaráðuneytinu þar sem þeir kynntu möguleika á vefráðgjöf. Þar kom fram að sú lausn að bjóða fram ráðgjöf á vefnum hefur komið ágætlega út og er mun ódýrari leið en einstaklingsviðtölin. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins mun skoða möguleika á námsráðgjöf á vefnum í samstarfi við Háskóla Íslands. Kannað verður vel hvaða efni sé til, áhugapróf o.fl. Sagt frá dönskum vef þar sem sé að finna ýmislegt um menntun, störf, námskeið, nám o.fl. www.ug.dk.


Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English