Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

9.4.2010

Fundur þriðjudaginn 9. mars

Samningur um námsráðgjöf við VMST - árangursmat: Sagt frá fundi FA með VMST þar sem farið var yfir árangurinn af samstarfi ráðgjafa símenntunarmiðstöðva og ráðgjafa VMST. Innan VMST er ánægja með samstarfið. Það sem helst má bæta snýr að upplýsingamiðlun milli aðila og það er verið að skoða hvernig samræma megi skráningar á milli ráðgjafa VMST og ráðgjafa símenntunarniðstöðvanna. Skiptar skoðanir eru um hvort ráðgjafar símenntunarmiðstöðva eigi að fá beinan aðgang í gagnagrunn VMST.

Staðan á vinnumarkaði: Tölur um atvinnuleysi í febrúar sýna að hlutfall atvinnuleysis fer úr 9,0% í 9,2% en það er aðeins lægra hlutfall atvinnuleysis en spár VMST gerðu ráð fyrir. Talsvert gegnumstreymi hefur verið á atvinnuleysisskránni. Um 2.000 nýskráningar voru í febrúar en þá var einnig talsvert um afskráningar í mánuðnum og því nokkur hreyfing á vinnumarkaðnum. Eitthvað hefur verið um afskráningar vegna náms og eftirlits. Skv. skráningargrunni VMST voru um 16.600 manns á atvinnuleysisskrá í lok febrúar.

Raunfærnimat: Sagt frá stöðunni í raunfærnimatinu þ.e. hvernig þeim sem klára raunfærnimat hjá IÐUNNI fræðslusetri gengur að komast inn í framhaldsskólana til að ljúka sínu námi. Staðan virðist ekki vera alveg eins slæm og framkvæmdastjóri IÐUNNAR fræðsluseturs átti von á. Mikil aukning er hjá atvinnuleitendum í raunfærnimatið. Eftir raunfærnimat eru þessir einstaklingar að rekast á hindranir því einingafjöldi áfanga í framhaldsskólum er oft hærri en nám á atvinnuleysisbótum leyfir. Mál þetta verður skoðað hjá VMST.

Vinnustaðanám: Sagt frá fyrirhuguðu vinnustaðanámi þar sem starfsþjálfun kemur til viðbótar við námsleiðir FA. Þetta er hugsað þannig að fyrirtæki fá greiðslur fyrir að taka á móti nemendum (sem halda bótum sínum) en það er verið að vinna að breytingu á reglugerð hvað þetta varðar en gæta þarf að fyrirtæki séu ekki að nýta sér þetta úrræði til að ná sér í ódýrt vinnuafl. Mikilvægt í þessu fyrirhugaða vinnustaðanámi er að nemendur fái góða leiðsögn þegar inn á vinnustað er komið.

Önnur mál: Sagt frá nýju verkefni sem Efling, stéttarfélag fór í gang með fyrir stuttu síðan. Hingað til hefur gengið mjög illa hjá þeim að ná til sinna félagsmanna sem eru í atvinnuleit. Efling fór nýja leið, hringdi í fólk og boðaði það á fund. Á fundinum fékk fólk tækifæri að segja sínar skoðanir og síðan var farið með hópinn í gönguferð þar sem Rauðakrosshúsið og Hlutverkasetur voru m.a. heimsótt.

Mímir-símenntun hefur ráðið verkefnisstjóra til að halda utan um verkefnið „Ungt fólk til athafna". Hjá Mími eru núna í gangi tveir hópar atvinnuleitenda í Færni í ferðaþjónustu I og II og einn Grunnmenntaskóli og þá er fyrirhugað að fara af stað með námsleið fyrir erlenda ríkisborgara eftir páskana þar sem blandað er saman íslensku, útivist, ferðaþjónustu og Landnemaskólanum.

Tvær nýjar námsleiðir séu nú þegar farnar í gang í tveimur framhaldsskólum, námsleiðir sem eru sérsniðnar að þörfum þeirra einstaklinga sem hafa átt erfitt uppdráttar í framhaldsskólum. Skólarnir sem um ræðir eru Fjölbrautarskólinn í Breiðholti (FB) og Fjölbrautarskóli Suðurnesja (FSS) en námsleiðirnar byggja á bóklegu og verklegu námi þar sem tekið er mið af áhugasviði hvers og eins.

Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English