Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir
9.4.2010
Fundur þriðjudaginn 9. febrúar
Námsráðgjöf símenntunarmiðstöðva 2009: Sagt frá ráðgjafafundi með náms- og starfsráðgjöfum símenntunarmiðstöðvanna en þar var m.a. farið yfir árangur ársins 2009. Þar kom einnig fram að starfsvettvangur náms- og starfsráðgjafa hjá símenntunarmiðstöðvunum hafi tekið miklum breytingum. Áður var meira um kynningar í fyrirtækjum en í dag hefur þjónusta við atvinnuleitendur aukist mjög mikið. Samstarf ráðgjafa símenntunarmiðstöðvanna og ráðgjafa VMST hefur gengið vel, mikilvægt sé að hafa samfellu í ráðgjöfinni þannig að verkferlar á milli VMST og símenntunarmiðstöðvanna séu samræmdir.
Staðan á vinnumarkaði: Atvinnuleysi í janúar var 9,2% og hæg aukning er í nýskráningum. Mest er aukningin hjá yngsta hópnum 16-19 ára og 20-25 ára.
Ráðgjöf símenntunarmiðstöðva við atvinnuleitendur: Verkefni það sem símenntunarmiðstöðvar tóku að sér í samband við að virkja atvinnuleitendur hefur gengið vel. Þeir einstaklingar sem ráðgjafar hafa haft samband við hafa í langflestum tilfellum tekið vel í þær virkniaðgerðir sem þeim stendur til boða. Þá kom fram að samstarf milli ráðgjafa símenntunarmiðstöðvanna og ráðgjafa VMST hafi einnig gengið vel en huga þarf að þáttum sem snúa að skráningum og upplýsingagjöf.
Ungt fólk til athafna: Sagt frá undirritun samninga á milli ráðherra og Kvasis í sambandi við námsleiðir FA. Undirbúningur á starfsþjálfunarnámi í samstarfi við fyrirtæki sem tengjast ákveðnum námsleiðum FA er hafinn. Þetta er lengst komið í ferðaþjónustunni. Unnið er að því hvernig hægt sé að ramma inn framkvæmdahliðina í sambandi við vinnustaðanámið en þar þarf m.a. að taka tillit til lagalegra mála. Umræður verða um starfsþjálfun með námsleiðum FA og hvort það eigi að huga að því að útbúa logbók og hvort það sé hlutverk FA að halda utan um slíkt verkefni.
Samráð háskóla vegna undirbúnings fyrir frumgreinanám: Sagt frá fundi FA með aðilum frá frumgreinadeildum háskólanna varðandi það hvort hægt sé að samræma undirbúning fyrir frumgreinadeildar með einhverjum hætti. Jákvæð viðbrögð hafa komið frá háskólunum vegna þessa máls.
Önnur mál: Sagt frá því að verkefnið félagsvinir fyrir atvinnuleitendur, sem fékk styrk úr Starfsmenntasjóði á síðasta ári, sé að fara í gang en því miður vanti ennþá að fá skjólstæðinga í verkefnið. Mentorarnir (sjálfboðaliðar/leiðbeinendur) sjálfir eru tilbúnir og hafa farið í gegnum námskeið en illa hefur gengið að finna atvinnuleitendur til að þiggja leiðsögnina.
Leit
Toppmynd




















