Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir
1.2.2010
Fundur þriðjudaginn 19. janúar
Staðan á vinnumarkaði: Aukning á atvinnuleysi í nóvember og desember er mun hægari en spár VMST gerðu ráð fyrir. Í sumar gerðu spár ráð fyrir því að atvinnuleysi í desember myndi fara í 10% en raunin varð rúm 8%. Fyrstu dagana í janúar fjölgaði hægt á atvinnuleysisskrá en síðustu vikuna hafa skráningar aukist mikið. Í dag er hlutfall atvinnuleysis 9,8% hjá körlum á móti 7,6% hjá konum og þá hefur atvinnuleysi hjá erlendum ríkisborgurum öðrum en Pólverjum hafi aukist nokkuð síðustu daga, talsvert af Norðurlandabúum en einnig nokkuð af Lettum og Litháum.
Fjöldi þeirra sem hafa verið á atvinnuleysiskrá í eitt ár eða lengur var u.þ.b. 3.200 manns í lok desember. Spár VMST gera ráð fyrir það muni fjölga mikið í þeim hópi í janúar og nokkuð í febrúar og mars en eftir það mun fjöldi þeirra trúlega standa í stað í kringum 5.000 manns.
Samningur VMST um námsráðgjöf: Vel hefur gengið hjá náms- og starfsráðgjöfum Mímis-símenntunar að hafa samband við atvinnuleitendur og fá þá í viðtöl. VMST leggur áherslu á að það sé hluti af starfinu að koma fólki í úrræði og síðast en ekki síst að taka á móti fólki þegar úrræðum lýkur. Erfitt hefur gengið að ná í hluta hópsins en stærstur hluti þeirra sem hafa verið boðaðir í viðtal eru mjög þakklátir.
Aðgerðir VMST vegna ungs fólks: Fulltrúi frá VMST segir frá verkefninu/átakinu „Ungt fólk til athafna" sem stofnunin kynnti í lok árs 2009. Í niðurstöðum vinnuhóps á vegum menntamálaráðherra og félags- og tryggingarmálaráðherra sem kynntar voru í desember sl. kom fram afar slæm staða yngsta hópsins þegar horft er á atvinnuleysi. Auknum fjármunum verður m.a. ráðstafað til að fjölga ráðgjöfum. Markmið VMST fyrir yngsta hóp atvinnuleitenda (25 ára og yngri) eru m.a. að þau að allir skulu vera komnir í virkniaðgerðir fyrir 1. apríl nk. og að einstaklingar hafi úr fjölbreyttum úrræðum að velja.
Samningur við VMST um námsleiðir fyrir ungt fólk: Sagt frá fyrirhuguðum samningi FA við VMST um námsúrræði fyrir unga atvinnuleitendur. Þar verður fyrst og fremst horft á aldurshópinn 18-24 ára sem hafa verið á vinnumarkaði en gert er ráð fyrir því að 16-17 ára krakkar fari inn í framhaldsskólana. Þau atriði sem sérstaklega þarf að huga að vegna þátttöku yngra fólks í námsleiðum FA er einingamat, sem er miðað við fullorðið fólk (öldungadeildir eru viðmið), smiðjur með verklegri áherslu og undirbúning fyrir frumgreinadeildir.
Staða erlendra starfsmanna: Umræður verða um fjölda erlendra ríkisborgara sem sé á atvinnuleysisskrá í dag og hvort hægt sé að greina þann hóp betur. Mikilvægt sé að reyna skoða hvað sé hægt að gera fyrir þennan hóp, sérstaklega yngra fólkið. Svo virðist sem það sé erfitt að ná til hópsins og mikilvægt að auka samstarf á milli fræðsluaðila og VMST til að hægt verði að þjónusta þennan hóp betur varðandi menntunarúrræði.

Leit
Toppmynd