Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir
17.12.2009
Fundur þriðjudaginn 1. desember
Samningur við Vinnumálastofnun um samstarf: Vel hefur gengið hjá náms- og starfsráðgjöfum hjá Mími-símenntun og IÐUNNI fræðslusetri að fá atvinnuleitendur í viðtöl. Forgangshópur ráðgjafa VMST varðandi viðtölin er yngsti hópurinn á meðan ráðgjafar Mímis hafa t.a.m. einbeitt sér að eldri langtímaatvinnulausum með stutta formlega skólagöngu. Áhugavert verður að sjá stöðuna hjá framhaldsskólunum á næsta ári og hvort þeir geti tekið við eldri nemendum sem sækja um. Sagt frá því að innritanir í framhaldsskólanna séu heldur færri nú en á sama tíma í fyrra, 2.200 á móti 3.000 fyrir ári síðan, en síðasta ár hafi verið óvenjulegt vegna fjölda.
Staðan á vinnumarkaði: Í dag eru 16.091 manns á atvinnuleysisskrá sem er um 8,4%. Verði sama þróun í skráningum atvinnuleysis á næstunni og verið hefur síðustu mánuði muni atvinnuleysið ekki fara mikið upp fyrir 10% í febrúar-mars. Síðustu daga hafa komið nokkrar hópuppsagnir inn á borð VMST en ekkert í líkingu við ástandið sem var í gangi haustið 2008. Rætt um mikilvægi þess að setja yngsta hóp atvinnuleitenda í forgang en jafnframt er staða útlendinga áhyggjuefni. Umræður hvort þessi hópur eigi eitthvað að skoða úrræði fyrir atvinnulausa útlendinga.
Vinnuhópur um vinnumarkaðsúrræði, atvinnuleysi og menntun: Vinnuhópur ráðuneytanna hefur skilað af sér skýrslu sem er nú aðgengileg á vef félags- og tryggingarmálaráðuneytisins. Skýrslan innheldur talsvert af tillögum og þá er einnig þar að finna mjög mikið af áhugaverðri tölfræði en þar er m.a. áberandi hversu margir atvinnulausir eiga stutta skólagöngu að baka. Umræður verða um stöðu yngsta hópsins og hvernig hægt sé að þjónusta hann betur. Staðan í framhaldsskólunum er áhyggjuefni þar sem þeir eru nú í miklum niðurskurði á sama tíma og þeir eigi að taka við sem flestum nemendum. Vangaveltur um samstarf fræðsluaðila og ólíkra aðila í grasrótinni líkt og hefur verið gert víða á landsbyggðinni með góðum árangri. Fyrir nokkrum árum var mikið og gott samstarf á milli gamla Iðnskólans og Hins hússins. Áhugavert að skoða tengingu Hins hússins, sem hefur verið að vinna mjög gott starf með yngra fólkinu, við skólana.
Námssamningar: Tölur um fjölda námssamninga og fjölda nýsveina hjá IÐUNNI fræðslusetri og Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins sýna fækkun námssamninga árinu 2009 í samanburði við uppsveifluárin 2007-2008. Staðan í dag er svipuð og árin 2005-2006. Mikil gróska er í iðnnámi tengdu hönnun t.d. mikil aðsókn í hönnunarbrautina hjá Iðnskólanum í Hafnarfirði. Gæti verið áhugavert að tengja hönnunarnám við annað nám sem hugsað er fyrir atvinnuleitendur.
Á vegum FA: Sagt frá útgáfu Gáttar 2009 þar sem megin áherslan er íslenskan vinnumarkað. Þá er stuttlega fjallað um ársfund FA sem var að þessu sinni haldinn í samstarfi við Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB undir heitinu „Úrræði til árangurs". Einnig sagt frá námskeiði, sem FA er að undirbúa fyrir kennara, sem tekur á því hvernig eigi að nálgast erfiða nemendur.
Menntunarúrræði til samfélagsbreytinga: Tveir óháðir einstaklingar voru fengnir til að meta þau verkefni/hugmyndir sem kynnt verða á NVL ráðstefnu á Íslandi í byrjun árs 2010. Eftir faglegt mat þóttu eftirfarandi verkefni/dæmi standa upp úr: Hannað í málm (IÐAN fræðslusetur), Prisma (Samstarfsverkefni LHÍ og Háskólans á Bifröst), þrjú byggðaverkefni (Farskólinn á Norðurlandi vestra, Höfn í Hornafirði og Suðurnes), Gildi starfa/Value of work (Fræðslumiðstöð atvinnulífsins), Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Náms- og starfsráðgjöf á vinnustað (Fræðslumiðstöð atvinnulífsins).
Minnisblað til ráðherra: Minnisblað um starfsemi þessa samstarfshóps var sent menntamálaráðherra um miðjan nóvember.

Leit
Toppmynd