Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir
9.12.2009
Fundur þriðjudaginn 10. nóvember
Staðan á vinnumarkaði: Staðan á vinnumarkaði virðist ekki eins slæm og spár gerðu ráð fyrir. Í lok október var VMST tilkynnt um tvær hópuppsagnir en ekki er mikil aukning í atvinnuleysisskráningum. Fjöldi á atvinnuleysisskrá í lok október var 14.369 (7,6%) og er lítilleg aukning á milli mánaða (var 7,4% í lok september). Meiri aukning á atvinnuleysi á landsbyggðinni nú en það er þekkt árstíðasveifla m.a. vegna færri starfa í ferðaþjónustu, landbúnaði og fiskveiðum. Enn er atvinnuleysið mikið í byggingariðnaði en þar hefur ekki orðið nein aukning að ráði. Þegar atvinnuleysi er skoðað eftir menntun má sjá að það er minnst hjá háskólamenntuðum og mest hjá þeim sem hafa aðeins lokið grunnnámi. Þá er áberandi hversu margir sem hafa stúdentspróf eru án atvinnu, oft einstaklingar með stutta starfsreynslu og litla sérhæfingu.
Samningur við Vinnumálastofnun um samstarf: Sagt frá samningum þeim sem FA og VMST gerðu annars vegar við Kvasis (samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva) og hins vegar við IÐUNA fræðslusetur varðandi það að virkja fleiri náms- og starfsráðgjafa til að taka viðtöl við atvinnuleitendur. Nú þegar er verkefnið farið í gang t.d. hjá Mími-símenntun, IÐUNNI fræðslusetri og MSS. Minni áhugi er á slíku samstarfi þar sem atvinnuleysið hefur verið lítið eins og á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Á Suðurnesjum er þetta ekki alveg ný staða þar sem náms- og starfsráðgjafar MSS hafa áður átt samstarf við VMST varðandi það að virkja atvinnuleitendur. Náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR fræðsluseturs hafi fengið jákvæð viðbrögð frá atvinnuleitendum.
Samningur við ASÍ/SA: Nýr bráðabirgðasamningur á milli ASÍ og SA við menntamálaráðuneytið um starfsemi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins hefur verið undirritaður. Þessi samningur er til eins árs eða þangað til nýtt frumvarp um framhaldsfræðslu verður gengið í gegn.
Minnisblað til ráðherra: Verið er að leggja lokahönd á minnisblaði til menntamálaráðherra um starfsemi þessa samstarfshóps.
Vinnuhópur um vinnumarkaðsúrræði, atvinnuleysi og menntun: Vinnuhópurinn er að ljúka störfum og er skýrsla væntanleg á næstu dögum. Ýmislegt hefur verið rætt í hópnum en ekki hefur náðst sátt um alla þætti. Þeir þættir sem síst sátt hefur verið um snúa að skerðingu á bótarétti atvinnuleitenda. Þá hafa einnig verið ræddar hugmyndir um breytingar á atvinnuleysistryggingarkerfinu. Þá má nefna hugmyndir um að fá atvinnulífið til að taka við atvinnuleitendum í starfspláss. Fyrirmyndin að slíku er komin frá Noregi þar sem fyrirtæki sem taka slíkt að sér hafa fengið skattaafslátt eða aðrar ívilnanir.
Verkefnið Völundarverk nefnt sem dæmi um vel heppnað verkefni en þar var verið að tefla saman atvinnuleitendum (bæði húsasmiðir og arkitektar) og fagmönnum í viðhaldi eldri húsa. Hugmynd þessi er mjög áhugaverð og vert sé að skoða fleiri fleti á slíku samstarfi fagmanna og atvinnuleitenda. Þar gæti ungt fólk lært handverk af sér reyndari og eldri mönnun þar sem allir hefðu þann samnefnara að vera atvinnuleitendur.
Önnur mál: Námssamningum hjá IÐUNNI fræðslusetri hafa fækkað í ár í samanburði við síðustu ár. Sagt frá því að útvarpsþáttur fyrir atvinnuleitendur sem átti að fara í loftið í haust muni verða að veruleika í byrjun næsta árs á RÚV (Rás 1).

Leit
Toppmynd