Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

11.11.2009

Fundur þriðjudaginn 20. október

Staðan á vinnumarkaði: Atvinnuleysisskráningar eru farnar að aukast aftur án þess þó að um sé að ræða stórar fjöldauppsagnir. Tölur um langtímaatvinnuleysi vekja óhug hjá samstarfshópnum en hópur yngri atvinnuleitenda er sérstaklega illa staddur í dag og áberandi er hversu stutta skólagöngu sá hópur hefur, sérstaklega yngra fólk á landsbyggðinni. Sagt frá rýnihópi atvinnuleitenda á vegum Eflingar stéttarfélags. Þar eru sláandi niðurstöður og mikil deyfð einkennir hópinn.

Samantekt á efni um atvinnuleitendur: Farið yfir tölur frá fimm símenntunarmiðstöðvum en þar fóru 239 atvinnuleitendur í vottaðar námsleiðar FA frá jan.-sept. 2009, um helmingur hjá Mími. Vinsælustu námsleiðirnar voru Grunnmenntaskólinn (87 nem.), Aftur í nám (51 nem.), Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum (28 nem.) og Sterkari starfsmaður (26 nem.).  Hérna er um að ræða hópa atvinnuleitenda frá VMST að langmestu leyti. Fjöldi atvinnuleitenda í öðrum námsleiðum var 400 og þar af voru rúmlega helmingur útlendingar í íslenskunámi. Mímir-símenntun tók saman aldursskiptingu í sínum hópum, bæði vottað nám og önnur námskeið fyrir atvinnulausa og þar kom fram að hópurinn 30 ára og yngri telur þar um 33%, 31-40 ára = 29%, 41-50 ára = 20%, 51-60 ára = 14% og 61-70 ára = 4%.

Sagt frá því að Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum hafi áhuga á að fara í gang með nýtt námskeið sem byggir að hluta til á sjálfsstyrkingu, verknámi og starfsþjálfun.

Samningur við Vinnumálastofnun um samstarf: Sagt frá því að samningur VMST við ráðgjafa símenntunarmiðstöðvanna sé í ferli og að verið sé að vinna úr þeim athugasemdum þeim sem bárust frá símenntunarmiðstöðvunum og verður þetta líklega klárað fljótlega.

Minnisblað til ráðherra: Verið er að leggja lokahönd á minnisblað til menntamálaráðherra um starfs vinnuhópsins og hvernig úrræðin hafa verið að nýtast atvinnuleitendum.

Vinnuhópur um vinnumarkaðsúrræði, atvinnuleysi og menntun: Sagt frá því að vinnuhópurinn sem félagsmála- og menntamálaráðuneytin setti á laggirnar hafi ætlað að skila af sér skýrslu í lok október um starf hópsins og tillögur að úrræðum. Áhersla vinnuhópsins hefur verið á langtímaatvinnulausa, ungt fólk sem hefur stutta formlega menntun. Hugsanleg aðkoma Samtaka atvinnulífsins að taka atvinnuleitendur markvisst inn í fyrirtæki í starfsþjálfun hefur verið rædd

Önnur mál: Umsókn um mentorakerfi fyrir atvinnulausa hlaut styrk frá Starfsmenntaráði og mun sá hópur sem stóð að baki umsókninni funda fljótlega. Sagt frá fyrirhugaðri ráðstefnu náms- og starfsráðgjafa til að kynna fullorðinsfræðslukerfið fyrir námsráðgjöfum í framhaldsskólum, en sótt var um styrk í verkefnið til Starfsmenntaráðs sem ákvað að veita því styrk.


Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English