Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir
27.10.2009
Fundur þriðjudaginn 29. september
Staðan á vinnumarkaði: Nokkuð mikið um það að fólk sé að fara inn og út af skrá um þessar mundir. Skv. skráningargrunni VMST var fjöldi þeirra sem var á atvinnuleysisskrá í lok september 15.132 (7,7%). VMST hefur verið að greina hópinn 20 ára og eldri sem hafa aðeins lokið grunnskólaprófi og þar telur hópurinn 20-29 ára um 42% af hópnum og er hlutfall karla 66%.
Minnisblað frá Vinnumálastofnun um samstarf: Forstjóri Vinnumálastofnunar kemur á fund samstarfshópsins og fer yfir minnisblað með hugmyndum um samstarf ráðgjafa VMST og ráðgjafa símenntunarmiðstöðva. Samstarf þetta gengur út á það að VMST mun miðla upplýsingum um atvinnulausa einstaklinga á skrá til stéttarfélaga og símenntunarmiðstöðva. Ráðgjafar þar munu síðan í samráði við VMST hafa samband við atvinnuleitendur og boða þá í viðtal. Almenn ánægja með þessa aðgerðaráætlun og verður aðkoma BSRB að samningnum skoðuð sérstaklega.
Kynningarmál: Sagt frá útgáfu kynningarbæklings um menntatorg.is en bæklinginn verður einnig að finna á vefsvæði Menntatorgs á rafrænu formi. Þá kom fram að minnisblað um starfsemi samstarfshópsins sem senda á til menntamálaráðherra er enn í vinnslu. Verið er að taka saman upplýsingar um fjöldi þeirra atvinnuleitenda sem hafa farið í vottaðar námsleiðir FA til að bæta inn á minnisblaðið.
Vinnuhópur um vinnumarkaðsúrræði, atvinnuleysi og menntun: Sagt frá starfsemi vinnuhóps sem að félags- og tryggingarmálaráðuneyti og menntamálaráðuneyti standa að. Þessi hópur hefur kallað eftir upplýsingum úr ýmsum áttum, m.a. frá símenntunarmiðstöðvunum, til að átta sig sem best á stöðunni og reyna finna þá atvinnulausu einstaklinga sem eru „týndir". Eftir u.þ.b. 2-3 vikur muni liggja fyrir samantekt frá hópnum varðandi úrræði o.fl.
Mentorakerfi fyrir atvinnulausa - umsókn til starfsmenntaráðs: Sagt frá umsókn Eflingar stéttarfélags og samstarfsaðila til Starfsmenntaráðs en fyrirmyndin að verkefninu er mentorakerfi fyrir konur af erlendum uppruna sem Rauði krossinn stóð að í samstarfi við Eflingu.

Leit
Toppmynd