Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

7.10.2009

Fundur þriðjudaginn 8. september

Menntatorg - kynningardagur fyrir atvinnuleitendur: Þó svo skipulag Menntatorgsins hefði gengið afar vel í vor þá komu fáir og miðað við þann kostnað og vinnu sem lagt var í viðburðinn er kostnaður á mann mjög hár (hár snertikostnaður). Í ljósi þess og þeirrar óvissu sem VMST býr við varðandi fjármagn var ákveðið að halda ekki aftur opinn kynningardag fyrir atvinnuleitendur. Rætt um það að sameiginlegur kynningardagur sé líklega ekki leiðin sem þurfi til að ná til fólks heldur sé maður á mann aðferðin líklega sú eina sem dugi þegar fólk sé komið í langtímaatvinnuleysi.

Bæklingur: Bæklingur um menntatorg.is er kominn á prentstofu og verður líklega tilbúinn fyrir helgina. Sú hugmynd kom fram í hópnum að setja bæklinginn á rafrænt form á netið þannig að hægt sé að sækja hann og hala niður og var vel tekið í þá hugmynd.

Símatorg: Sagt frá kynningu FA um www.menntatorg.is og kynningu VMST um vinnumarkaðsúrræði fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða 1717 Hjálparsíma Rauða krossins.

Minnisblað til ráðherra: Uppkast að minnisblaði til menntamálaráðherra er lagt fyrir hópinn. Athugasemdir komu varðandi minnisblaðið þess efnis að það vanti stutta samantekt um hversu margir atvinnuleitendur séu að nýta sér  þau úrræði sem séu í boði fyrir markhóp FA: Minnisblaðið verður lagfært m.t.t. þessara athugasemda.

Almennar umræður verða um stöðuna í dag. Áhyggjuefni hversu fáir séu að koma á íslenskunámskeið fyrir útlendinga. Eitt stærsta vandamálið í dag er hversu fáir ráðgjafar eru hjá VMST til að geta þjónað öllum þeim fjölda einstaklinga sem eru á atvinnuleysisskrá í dag. Miðað við þann mannskap sem stofnunin hafi sé mjög erfitt að ná í fólk. Hugmyndir um hvort fullorðinsfræðslukerfið geti flutt fjármagn á milli flokka, þ.e. ef lítil aðsókn sé í námskeið hvort hægt sé að flytja peninga sem voru ætlaðir þar t.d. yfir í ráðgjöfina.

Staðan á vinnumarkaði: Atvinnuleysi í ágúst hefur aðeins lækkað frá því í júlí og hefur verið á bilinu 7,7-8,0%. Nú sé talsvert um það að yngra fólkið sé að fara af atvinnuleysisskrá vegna þess að það er að fara í nám.  Tölum um langtímaatvinnuleysi er dreift innan hópsins. Umræður verða um hvort mögulegt sé að greina betur hóp langtímaatvinnulausra sem eru yngri en 30 ára og hafa aðeins grunnskólapróf.  Sagt frá því að VMST sé að skoða þann möguleika að framkvæma ítarlega könnun á meðal atvinnuleitenda.

Vinnuhópur um vinnumarkaðsúrræði, atvinnuleysi og menntun: Sagt frá vinnuhópi sem félags- og tryggingarmálaráðuneyti og menntamálaráðuneyti hefur komið á laggirnar.  Megináhersla verður lögð á úrræði til að auka virkni hjá atvinnulausum og er þar m.a. horft til þeirra sem eru með minni menntun og eru yngri en 30 ára.

Mentorakerfi fyrir atvinnulausa - umsókn til starfsmenntaráðs: Sagt frá því að Efling stéttarfélag í samstarfi við FA, Mími-símenntun, IÐUNA fræðslusetur og Rauða krossinn hafi skilað inn umsókn til Starfsmenntaráðs fyrir mentoraverkefni fyrir atvinnulausa.

Staðan hjá fræðsluaðilum: Hjá Mími-símenntun hefur verið mikil eftirspurn í skapandi námskeið og norræn tungumál (norsku, sænsku og dönsku) á meðan mikill samdráttur er í íslensku fyrir útlendinga en þar hefur aðeins tekist að fylla þriðjung af auglýstum námskeiðum. Þess ber að geta að 100% hækkun hefur orðið á verði því sem útlendingar þurfa að greiða fyrir íslenskunámskeiðin vegna niðurskurðar hjá ráðuneytinu.


Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English