Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

27.8.2009

Fundur þriðjudaginn 18. ágúst

Staðan á vinnumarkaði: Yfir sumartímann minnkaði atvinnuleysi lítillega og var 8,0% í júlí í samanburði við 9,1% í apríl. Dregið hefur meira úr skráningum atvinnuleysis hjá yngra fólkinu og er batinn minni á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni. Atvinnuleysi í mannvirkjagerð hefur lækkað nokkuð á meðan aukning er í fræðslustarfsemi og í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Í skráningargrunni VMST voru 16.095 manns á atvinnuleysisskrá um miðjan ágúst (8,0% atvinnuleysi). Munurinn á milli karla og kvenna hefur minnkað síðustu mánuðina og þá hefur einnig dregið nokkuð úr skráningum á atvinnuleysi í iðnaði.

Kynningarmál: Lokauppkasti af kynningarbæklingi um menntatorg.is er dreift til fundarmanna. Engar athugasemdir við bæklinginn og ákveðið að gefa hann út sem allra fyrst.

Innritanir í framhaldsskólana. Fulltrúi frá MRN segir unnt hafi verið að taka á móti öllum þeim sem eru í forgangshópi framhaldsskólanna en eitthvað af eldri nemendum eigi enn eftir að fá pláss. Vangaveltur verða um yfirfærslu fjármuna á milli flokka, þ.e. fullorðinsfræðslu og framhaldsskóla. Málið verður að skoða í heild sinni og þannig að hægt verði að finna einhverjar lausnir fyrir þá fullorðnu sem komast ekki inn í framhaldsskólana. Frétt í Fréttablaðinu verður að umtalsefni en þar var sagt frá því að einstaklingum sem ekki komast inn í dagskóla framhaldsskólunum í sé öllum beint i kvöldskóla. Rætt um það hvort náms- og starfsráðgjafar í framhaldsskólunum þekki einfaldlega ekki þá valkosti sem bjóðast í sambandi við nám fullorðinna utan framhaldsskólanna.

Framtíð samstarfshópsins: Umræður verða um starfsemi hópsins og næstu verkefni. Þar kom m.a. fram að verkefni samstarfshópsins sé langt frá því að vera lokið og að um helmingur þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í dag hefur aðeins lokið grunnskólaprófi. Þá er mikil fjölgun þeirra sem eru komnir í langtímaatvinnuleysi einnig mikið áhyggjuefni. Líklegt er að markhópur FA muni smám saman verða stærri í hópi langtímaatvinnulausra. Almenn ánægja er með starfsemi samstarfshópsins og þeir sem tóku til máls voru allir á því að halda þessu starfi áfram. Sú breyting hefur orðið á samstarfshópnum að Sigríður Anna Guðjónsdóttir hefur látið af störfum hjá SVÞ en hún var fulltrúi SA í hópnum en í hennar stað kemur María Guðmundsdóttir frá SAF (Samtökum ferðaþjónustunnar). Þá kemur Hulda Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Mímis-símenntunar einnig ný inn í hópinn sem fulltrúi frá fræðsluaðilum.

Umræður verða í hópnum hvort skuli formfesta starfið með beinni aðkomu hins opinbera. Ekki þótti vænlegt að fara þá leið en þess stað verður menntamálaráðherra sent minnisblað um starfsemi þessa hóps og tilgreint að þessi hópur geti verið leiðandi í umræðunni um menntamálin. Drög að minnisblaði fyrir ráðherra skal leggja fyrir næsta fund.

Önnur mál:  Sagt frá fundi FA með menntamálaráðherra í vikunni áður en þar kom m.a. fram að ráðuneytið sé að endurskoða uppbyggingu á  frumgreinadeildunum í skólakerfinu.


Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English