Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

29.6.2009

Fundur þriðjudaginn 16. júní

Kynningarmál: Símatorg - búið er að taka saman upplýsingapakka um menntatorg.is fyrir Hjálparsíma Rauða krossins 1717. Þessar upplýsingar eru nú komnar inn í gagnagrunn hjá Hjálparsímanum og munu nýtast starfsmönnum og sjálfboðaliðum við að svara fyrirspurnum varðandi menntunarúrræði. Kynningarbæklingur um menntatorg.is er á lokastigi. Vika símenntunar - fulltrúi MRN segir frá því að Vika símenntunar sem menntamálaráðuneytið hefur staðið fyrir á hverju hausti hafi verið blásin af en það sé liður í niðurskurði hjá ráðuneytinu.

Staðan á vinnumarkaði: Farið yfir stöðuna á vinnumarkaði en þar kemur m.a. fram atvinnuleysi virðist ætla að minnka í júní, var komið í 8,7% í maí. Stafar að hluta til af fjölgun í vinnuafli. En ásókn námsmanna í bætur er mun minni en bjartsýnustu spár gerðu ráð fyrir.

Innritanir í framhaldsskólanna: Rætt um umfjöllun fjölmiðla að það hefði þurft að vísa nokkrum fjölda frá vinsælustu skólunum. Heildarmyndin ekki alveg rétt því nóg sé af lausum plássum í mörgum framhaldsskólum og líklega verði hægt að taka á móti langflestum sem vilja fara í fara í nám í framhaldsskólunum í haust.

Menntun til samfélagsbreytinga - norrænt verkefni: Umræður um þau íslensku verkefni sem koma til greina á ráðstefnuna „Menntun til samfélagsbreytinga". Hugmyndir koma bæði frá samstarfshópi þessum og starfsmönnum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Þessi samstarfshópur mun síðan velja 6-8 verkefni til að taka þátt í NVL ráðstefnu á Íslandi næsta haust.  Stutt spjall verður um verkefnin og þar kemur fram styrkleiki byggðaverkefnanna en umfram allt er mikilvægt að velja eins fjölbreytt verkefni á ráðstefnuna eins og mögulegt.

Önnur mál: Hugmyndin um að koma á einhvers konar mentorakerfi fyrir atvinnulausa er rædd og mun þessi samstarfshópur beita sér í málinu. Haft verður samband við Rauða krossinn og Vinnumálastofnun og reyna koma þessu yfir á næsta stig.


Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English