Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

3.6.2009

Fundur þriðjudaginn 19. maí

Velferðarvaktin: Sagt í stuttu máli frá tilurð og starfi Velferðarvaktarinnar en hún skiptist í nokkra hópa: barnahópur, ungmenni og ungt fólk, þeir sem standa/stóðu höllum fæti fyrir kreppu, fjármál heimilanna, fólk án atvinnu, kreppan og heilsufar, ráðgjafahópur um rannsóknir og hópur um félagsvísa. Velferðarvaktin í dag er á svipuðum stað og samstarfshópur um menntunarúrræði. Báðir hópar fóru af stað af miklum krafti, öfluðu gagna og gerðu ýmsar tillögur að verkefnum sem mörg hver hafa orðið að veruleika.

Staðan á vinnumarkaði: Litlar breytingar hafa orðið á skráningum á atvinnuleysisskrá síðustu vikur. Nú er verið að bíða eftir hvað gerist hjá fyrirtækjum varðandi ráðningar skólafólks í sumar. Í dag er verið að skoða og greina stöðu námsfólks varðandi sumarnám, bótarétt o.fl.

Kynningarmál - Menntatorg: Sagt frá því að undirbúningshópur telur að rétt sé að endurtaka Menntatorg en þó ekki fyrr en í haust. Ástæður þess að vænlegra þykir að halda viðburðinn í haust frekar en núna í lok maí/byrjun júní eru þær að lítið framboð er af námi yfir sumartímann. Undirbúningshópnum finnst slæmt að kynna úrræði sem hefjast ekki fyrr en með haustinu. Hópnum þykir áhugavert að skoða þann möguleika að halda Menntatorgið samhliða Viku símenntunar og var síðasta vika í ágúst nefnd. Áherslan þar yrði ekki aðeins á atvinnulausa eins og á síðasta Menntatorgi.

Umræður um heimsókn - Jósep Gíslason:  Almenn ánægja var með heimsókn Jóseps Gíslasonar innan hópsins og rætt um hversu slíkir einstaklingar séu dýrmætir. Fram kom að maður á mann aðferðin virðist vera sú heppilegasta í baráttunni við að virkja atvinnulausa einstaklinga. Umræður um jákvæða reynslu af mentorakerfi fyrir atvinnulausa einstaklinga og vangaveltur um hvernig væri hægt að þróa slíkt kerfi áfram. Fram kom hugmynd um hvernig samstarf ólíkra hópa gæti orðið til að virkja atvinnulausa einstaklinga. Þessi hópur gæti verið undir handleiðslu ráðgjafa og í honum gætu átt sæti tómstundarstöðvar, kirkjur o.fl. en slíkt samstarf er nú þegar farið af stað á einhverjum stöðum.

Fundur framkvæmdastjóra símenntunarmiðstöðva Sagt í stuttu máli frá því helsta sem kom frá á fundi framkvæmdastjóra símenntunarmiðstöðva þann 15. maí sl.  Fram kom að álag sé mikið á VMST og því ekki mögulegt að sinna einstaklingum. Nauðsynlegt að beita hvatningu og helst að skikka fólk á námskeið. Margir mæta ekki á námskeið og því æskilegt að búa til stutt námskeið eins konar lokkara.  Fundarmenn eru sammála um að námsleiðirnar séu sterk tæki, en erfitt að komast að fólkinu. Hugsanlega megi brjóta upp námsleiðir í styttri módúla. Hugsanlega sækist fólk ekki eftir námsleiðum vegna þess að það missir bætur ef það mætir ekki nægilega vel.

Menntun til samfélagsbreytinga - norrænt verkefni: Sagt aðeins frá norræna verkefninu „Menntun til samfélagsbreytinga" en samstarfshópurinn mun taka að sér að finna áhugaverð íslensk dæmi um hvernig menntun hefur leitt til samfélagsbreytinga.


Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English