Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

25.5.2009

Fundur þriðjudaginn 12. maí

Kynningarmál: Farið í stuttu máli yfir stöðuna á símatorginu en FA hefur sett sig í samband við Rauða krossinn og mun fylgja því máli áfram ásamt Vinnumálastofnun. Varðandi útgáfu á kynningarbæklingi hafði FA samband við Nýsköpunarmiðstöð varðandi það að nýta sér þeirra hugmynd að ársfundarboðskorti. Vel var tekið í þá hugmynd en taka ber en tillit til litasamsetningar og stærðar (yrði ekki í nákvæmlega sama lit og stærð og boðskort Nýsköpunarmiðstöðvar).

Sagt frá rýnihópi fyrir atvinnulausa innan Eflingar en á þeim fundum er áberandi hversu fáfræði fólks um stéttarfélögin er mikil. Á þessum fundum hefur komið fram hversu gönguferðir og útivist eru góð leið til virkni. Sú hugmynd kom fram innan hópsins að kynna betur starfsemi stéttarfélaganna en það er áhyggjuefni hversu atvinnulausir félagsmenn leita lítið til sinna stéttarfélaga. Rætt um mikilvægi þess að stéttarfélögin og VMST snúi bökum saman við að reyna ná til þessa hóps sem er búinn að vera atvinnulaus í 3-6 mánuði.

Fram kom sú hugmynd að framleiða kynningarmyndband í samstarfi við stéttarfélögin um hvaða ferli taki við hjá þeim einstaklingi sem lendir í þeirri stöðu að missa vinnuna. Þessum einstaklingi eða einstaklingum verður fylgt eftir í sínu daglega lífi þannig að slíkt myndband geti nýst öðrum í sömu sporum.

Staðan á vinnumarkaði: Nokkuð hefur fækkað á atvinnuleysisskrá í lok apríl í samanburði við lok mars. Engu að síðar var hlutfall atvinnuleysis í apríl (9,1%) aðeins hærra heldur en í mars (8,9%).  Mun stærri hópur framhaldsskólanema er kominn með vinnu en VMST átti von á. Þessa dagana er VMST að birta tölur um þróun á langtímaatvinnuleysi (meira en 6 mánuðir).  Fjöldi þeirra átaksverkefna og annarra verkefni sem falla undir vinnumarkaðsúrræði VMST er kominn í u.þ.b. 300 og fjöldi námssamninga í rúmlega 500.


Heimsókn - Jósep Gíslason:  Umræður með Jósepi Gíslasyni sem er án atvinnu í dag um tengingu hans við hóp atvinnulausra og hvaða leiðir séu líklegar til árangurs þegar koma á skilaboðum til atvinnulausra.  Jósep hefur verið að fara með hópa frá VMST, Deiglunni (Hafnarfirði) og Hlutverkasetri í gönguferðir en mjög misjafnlega hefur gengið hjá honum að virkja þá einstaklinga sem hann hefur reynt að ná til. Þá hefur Jósep einnig farið með sömu hópa í fyrirtækjaheimsóknir með mjög góðum árangri. Jósep segir að mann á mann aðferðin sé sú leið sem ber mestan árangur þegar kemur að því að ná til atvinnulausra.


Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English