Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

19.5.2009

Fundur þriðjudaginn 28. apríl

Kynningarmál: Sagt frá fyrirhuguðu samstarfi samstarfshópsins við Rauða krossinn varðandi símatorg um menntunarúrræði. Rauði krossinn tók mjög vel í hugmyndir samstarfshópsins um að bæta við upplýsingum um menntunarúrræði í Hjálparsíma Rauða krossins 1717.

Hugmyndir um lítinn kynningarbækling um vefsíðuna www.menntatorg.is ræddar þar sem fyrirmyndin er boðskort sem Nýsköpunarmiðstöð útbjó fyrir ársfund sinn í mars sl. Ágætlega tekið í þá hugmynd að útbúa slíkan kynningarbækling og mun Fræðslumiðstöðin fylgja því máli eftir. Nokkrar uppástungur komu fram hvar væri heppilegt að dreifa bæklingnum um Menntatorgið en fyrir utan skrifstofu Vinnumálastofnunar voru nefndir staðir eins og skrifstofur stéttarfélaganna, sundstaðir og kaffihús. Nauðsynlegt yrði að fá einhvern til að sjá um dreifinguna á bæklingunum. Sú hugmynd kom einnig upp að útbúa vefborða með sömu skilaboðum og eru að finna í kynningabæklingnum.

Sagt frá fyrirhugaðri heimsókn hóps atvinnulausra sem eru í gönguferð um Laugardalinn til Mímis og FA en þetta er gott tækifæri bæði fyrir Mími og FA til að komast í snertingu við hóp atvinnulausra sem sé svo erfitt að nálgast í dag.

Staðan á vinnumarkaði: Þann 27. apríl var fjöldi atvinnuleysisskráninga 18.058 (9,0%) á öllu landinu skv. skráningargrunni VMST. Þess má geta að á síðasta fundi samstarfshópsins í byrjun apríl voru 100 fleiri á atvinnuleysisskrá en nú þannig að það hefur dregið aðeins úr skráningum í apríl. Svo virðist vera að það sé að fækka á atvinnuleysisskrá í mannvirkjagerð þegar horft er til atvinnugreina. Þegar horft er að stöðuna út frá starfsstéttum má sjá að skráningar hjá iðnaðarmönnum og verkafólki hafa dregist aðeins saman á meðan fjölgun er enn hjá stjórnendum og sérfræðingum enda komu þeir hópar mun seinna inn á atvinnuleysisskrá en aðrar hópar.

Fundur ráðgjafa 17. apríl: Sagt frá fundi náms- og starfsráðgjafa þann 17. apríl sl. Á þeim fundi komu saman náms- og starfsráðgjafar frá símenntunarmiðstöðvunum og ráðgjafar Vinnumálastofnunar. Á þessum sameiginlega fundi ráðgjafa voru m.a. kynningar á VMST, FA og nýlegum reglugerðum um vinnumarkaðsúrræði auk hópavinnu ráðgjafa. Þessi sameiginlegi fundur ráðgjafa er fyrsta skref fyrir frekara samstarfi þessara hópa en mjög góð mæting var á fundinn og almenn ánægja með þetta framtak.

Fundur framkvæmdastjóra símenntunarmiðstöðva 15. maí: Ákveðið hefur verið að fundur FA með framkvæmdastjórum símenntunarmiðstöðvanna muni fara fram þann 15. maí. Á þessum fundi verður farið yfir helstu mál sem tengjast starfsemi FA í tengslum við símenntunarmiðstöðvarnar en allir framkvæmdastjórarnir hafa nú þegar tilkynnt sína þátttöku á fundinn.

Önnur mál: Umræður um hvort að framhaldsskólarnir muni bjóða upp á eitthvað nám í sumar en ráðuneytið er að skoða ýmsa möguleika varðandi sumarönn. Vegna bágrar stöðu ríkissjóðs sé aftur á móti ekki ljóst á þessari stundu hvort hægt verði að bregðast við fækkun sumarstarfa framhaldsskólanema með námi yfir sumartímann.


Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English