Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir
27.4.2009
Fundur þriðjudaginn 7. apríl
Staðan á vinnumarkaði: Fjöldi atvinnuleysisskráninga þann 3. apríl var kominn í 18.158 (9,2%) á öllu landinu skv. skráningargrunni VMST. Verulega hefur hægt á nýskráningum atvinnulausra í mars sem eru að koma jafnt úr öllum flokkum, aðeins meira núna hjá fólki yfir fimmtugt. Umræður verða um hversu lítil virkni sé í atvinnuleitinni hjá mörgum sem eru á atvinnuleysisskrá í dag. Hjá VMST eru á milli 300-400 störf í boði en lítið hefur verið sótt um þau störf.
NVL verkefni: Sagt frá NVL verkefni sem FA tekur þátt í en markmið verkefnisins er að safna saman dæmum með lýsingum á verkefnum þar sem fræðsla eða menntun eru notuð til þess að mæta erfiðleikum á vinnumarkaði. Borið undir samstarfshóp FA hvort hann getir tekið að sér að safna saman þessum dæmum og var sú tillaga samþykkt.
Ráðstefna 3. apríl: Rætt um námsstefnu sem félags- og tryggingarmálaráðuneytið stóð fyrir þann 3. apríl sl. Á námsstefnunni var m.a. kynning á verkefni sem gekk út á viðhald eldri húsa. (Hallenderverkefnið) Reykjavíkurborg hefur litið mjög jákvætt til þessa verkefnis og mun IÐAN fræðslusetur verða Reykjavíkurborg innanhandar varðandi það verkefni. Almennt mál manna að námsstefna þessi hafi tekist vel og það hafi farið saman góð þátttaka, góðar kynningar og jákvæður andi.
Önnur mál: Sagt frá samstarfsverkefni nokkurra aðila í verslun (verslunarmenn, flugfélög, SAF o.fl.) sem gengur út á það að laða erlenda ferðamenn í verslunarferðir til Íslands.
Leit
Toppmynd




















