Beint á leiðarkerfi vefsins

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

14.4.2009

Fundur þriðjudaginn 17. mars

Fræðsluaðilar: Farið var yfir stöðuna hjá nokkrum fræðsluaðilum á höfuðborgarsvæðinu. Hjá Mími-símenntun hefur verið mikil eftirspurn í vottaðar námsleiðir FA og norskunámskeið en aðsókn í íslensku fyrir útlendinga hefur dregist nokkuð saman. Þá hefur verið mikil aukning í náms- og starfsráðgjöf.

Hjá IÐUNNI fræðslusetri hefur verið þokkalega aðsókn í námskeið, lítil þátttaka hefur verið í námskeiðum almenns eðlis en fagnámskeið hafa gengið vel. Mjög mikill áhugi er á þátttöku í raunfærnimati, bæði á höfuðborgarsvæðinu sem og utan þess.

Hjá Starfsmennt hefur verið lítil eftirspurn í almenn námskeið á meðan námskeið fagstétta (stuðningsfulltrúar, læknaritarar, heilbrigðisritarar, sjúkraliðar og starfsfólk sýslumanna og dómstóla) hafa gengið vonum framar.

Námskeið Framvegis hafa gengið ágætlega á vorönn, sérstaklega starfstengd sjúkraliðanámskeið. Þá hefur fjarnám í samvinnu við VÍ hafa gengið vel sem og námskeið fyrir stuðningsfulltrúa á meðan  starfstengd hafa ekki gengið vel.

Hjá Nýsköpunarmiðstöð/IMPRU hefur verið mikill samdráttur í námskeið sem fólk þarf greiða sjálft fyrir eða þau námskeið sem fyrirtæki greiða fyrir sitt starfsfólk. Aftur á móti hafa námskeið, sem Ríkið eða menntastofnanir hafa verið að kaupa og fólk þarf ekki að greiða fyrir, gengið vel.

Staðan á vinnumarkaði: Fjöldi atvinnuleysisskráninga þann 16. mars var kominn í 17.169 (8,4%) á öllu landinu skv. skráningargrunni VMST. Skv. nýjustu tölum frá VMST hefur hægt verulega á fjölgun atvinnulausra síðustu dagana og má nefna að á Norðurlandi eystra hefur hlutfall atvinnulausra lækkað fyrstu tvær vikurnar í mars (-4,6%). Aftur á móti hefur fjöldi atvinnulausra síðustu vikur aukist hlutfallslega mest á þeim stöðum þar sem mjög lítið atvinnuleysi hefur verið (Vestfirðir og Norðurland vestra).

Menntatorg: Umræður um hvernig Menntatorgið, sem haldið var þann 6. mars hefði tekist, hvað hefði gengið vel og hvað hefði betur mátt fara. Í heildina tókst Menntatorgið mjög vel og verður það líklega endurtekið í vor eða haust þá hugsanlega með nokkrum breytingum (tími, staðsetning, kynningarmál o.fl.) þar sem megin áherslan verður á kynningar, örnámskeið og ráðgjöf.

Símatorg: Stuttar umræður verða um útfærslu á hugmyndinni um símatorg fyrir menntunarúrræði. Sú hugmynd kom fram að tengja þessa símaþjónustu 1717 línunni hjá Rauða krossinum og athuga hvort þar gæti verið einhver flötur um samstarf eða samvinnu.

Önnur mál: Sagt frá að fundur með ráðgjöfum símenntunarmiðstöðvanna og ráðgjöfum VMST verður haldinn 17. apríl. Stuttar umræður fara fram um einblöðung um menntunarúrræði fyrir atvinnulausa sem hefur áður komið til tals á þessum samstarfsfundum. Mikilvægt að beina fólki þangað sem upplýsingarnar er að finna eins t.d. inn á menntatorg.is og vmst.is. Sagt frá fyrirhugaðri ráðstefnu sem Félags- og tryggingarmálaráðuneytið mun halda þann 3. apríl um vinnumarkaðsaðgerðir. Þar verður m.a. kynning á reglugerðum, erlendir fyrirlesarar og örkynningar.


Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English