Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir

8.4.2009

Fundur þriðjudaginn 3. mars

Fræðsluaðilar: Ekki náðist að hafa samband við fræðsluaðila á höfuðborgarsvæðinu með formlegum líkt og gert var fyrir landsbyggðinni fyrir síðasta fund. Engu að síður virðist vera mikil aukning í vottuðu námsleiðirnar hjá mörgum símenntunarmiðstöðvum. Nánari upplýsingar verða kynntar á næsta fundi.

Staðan á vinnumarkaði: Fjöldi atvinnuleysisskráninga þann 2. mars var kominn í 16.687 (8,3%) á öllu landinu skv. skráningargrunni VMST. Flestar nýskráningar eru úr verslun (um 700), mannvirkjagerð (um 600) og iðnaði (um 400). Aukning skráninga í febrúar er hlutfallslega mest í sérfræðiþjónustu, fjármálaþjónustu og upplýsing-/fjarskiptaþjónustu (nálægt 40%). Þar næst koma verslun og iðnaður (nálægt 30%). Verulega hefur hægt á fjölgun atvinnulausra síðustu tvær vikur og aukningin fyrsta dag marsmánaðar er mun minni en á upphafsdegi síðustu þriggja mánaða.

Upplýsingaveita FA fyrir atvinnulausa einstaklinga: Umræður verða um útvíkkun á upplýsingaveitu FA sem hefur nú fengið nafnið menntatorg.is. Vefsíðan er ennþá á miklu vinnslustigi en verður engu að síður opnuð á Menntatorgi föstudaginn 6. mars.

Markaðstorg um menntunarúrræði: Farið yfir stöðuna á Markaðstorginu sem hefur nú fengið nafnið Menntatorg. Þar verða m.a. í boði: örnámskeið, kynningar og reynslusögur, vinnustofa, náms- og starfsráðgjöf, upplýsingatorg o.fl.

Símatorg: Hugmynd um svokallað símatorg er rædd en hún gengur út á það að hægt verði að hringja í eitt númer og fá upplýsingar hjá náms- og starfsráðgjöfum um framboð á námi og námskeiðum. Hugmyndin um símatorgið verður kynnt fyrir VMST og síðan verður ákveðið í hvaða farveg málið skuli fara.

Önnur mál: Líkleg tímasetning með ráðgjöfum símenntunarmiðstöðva og Vinnumálastofnunar er 20. mars nk. Fulltrúi frá menntamálaráðuneytinu gerir grein fyrir fjölmörgum vinnuhópum og nefndum sem ráðuneytið á sæti í varðandi velferðarmál, félagsleg áhrif vegna bankahruns, fjármál heimilanna, atvinnumál o.fl.


Þú ert hér:

Samstarfshópur » Fundargerðir samráðshóps

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English