Samstarf um menntunarúrræði - fundargerðir
27.2.2009
Fundur þriðjudaginn 17.02 2009
Fræðsluaðilar: Farið var yfir stöðuna hjá símenntunarmiðstöðvunum á landsbyggðinni. Mun meiri eftirspurn en áður er í vottuðu námsleiðirnar frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins á kostnað almennra námskeiða og tómstundarnámskeiða. Staðan í atvinnumálum er mjög misjöfn eftir landshlutum, staðan er verst á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum og þá hefur hún versnað mikið síðustu vikur á Austurlandi. Áhrif kreppunnar, á þeim stöðum sem uppsveiflan náði minnst til, eins og á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Vestmannaeyjum, eru mun minni.
Staðan á vinnumarkaði: Fjöldi atvinnuleysisskráninga þann 14. febrúar var kominn í 15.510 (7,5%) á öllu landinu skv. skráningargrunni VMST. Vinnumálastofnun reiknar með því að töluvert muni draga úr nýskráningum á atvinnuleysi næstu mánuði. Atvinnuleysi karla hefur verið að aukast hraðar síðustu vikur en í dag er atvinnuleysi karla um 8,8% á móti 6% hjá konum. Atvinnuleysi karla í hefur verið að aukist hratt í bílasölugeiranum sem og í prentiðnaði, iðnaði tengdum mannvirkjagerð og málmiðnaði. Hjá konum hefur atvinnuleysi verið að aukast mest í prentiðnaði, matvælaframleiðslu og smásölu með matvöru.
Upplýsingaveita: Útvíkkun á upplýsingaveitu FA m.t.t. einstaklinga gengur ágætlega en nokkuð vantar upp á að gera síðuna nægilega neytendavæna. Ábendingar komu fram um að það vantaði kafla fyrir náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimat og þá kom fjöldinn allur af ágætum athugasemdum sem verður tekið tillit til við vinnu vefsíðunnar. Þá kom fram hugmynd að áhugavert væri að skoða hvort hægt væri að opna símatorg þar sem hægt yrði að fá upplýsingar hjá námsráðgjöfum um námsúrræði fyrir atvinnulausa einstaklinga.
Markaðstorg: Farið yfir stöðuna á „Markaðstorginu". Undirbúningur hjá vinnuhópi gengur ágætlega og mun Markaðstorgið fara fram í Skeifunni 8, föstudaginn 6. mars frá kl. 14-18. Ef Markaðstorgið gengur vel verður líklega hægt að endurtaka slíkan viðburð aftur í vor. Þá er stefnt að því að opna nýja vefsvæðið um nám á atvinnuleysisbótum á Markaðstorginu.
Framhaldsskólar, skráningar: Á síðasta fundi var ákveðið að leita eftir nánari upplýsingum varðandi skráningar í Tækniskólann en talið var að umtalsverður fjöldi nemenda sem hefði skráð sig hefði ekki skilað sér í skólann. Niðurstaðan var sú að 268 nemendur af þeim 870 sem skráðu sig skiluðu sér ekki í skólann.
Könnun SA um horfur á vinnumarkaði: Þar ber hæst að á næstu mánuðum munu u.þ.b. 3.700 manns bætast á atvinnuleysisskrá. Skv. könnun SA er brýnasta verkefnið að lækka vexti sem allra fyrst og að bankaþjónusta komist í eðlilegt horf á nýjan leik.
Nám sem vinnumarkaðsúrræði: Sagt frá fyrirhugaðri ráðstefnu sem Félag- og tryggingarmálaráðuneytið ætlar að halda þann 2. apríl nk. um stöðuna á vinnumarkaði og atvinnuleysi. Gert er ráð fyrir því að fá erlenda fyrirlesara frá Finnlandi og Svíþjóð til að segja sína reynslu af þeim kreppum sem þessar þjóðir gengu í gegnum á sínum tíma.
Menntunarúrræði og samstarf við Vinnumálastofnun: Á fundi Kvasis og Vinnumálastofnunar var rætt um hvernig megi efla samstarf náms- og starfsráðgjafa símenntunarmiðstöðvanna og náms- og starfsráðgjafa hjá Svæðisvinnumiðlunum. Ekki er spurning um að veita náms- og starfsráðgjöfum hjá símenntunarmiðstöðvum heimild til að ganga inn á valdsvið ráðgjafa Vinnumálastofnunar, heldur er mikilvægt að efla þetta samstarf og nýta starfskraftana og fjármagnið, samræmingaráætlun. Markmið er að ráðgjafar beggja aðila komi saman á fundi um miðjan mars.

Leit
Toppmynd