Samstarf um menntunarúrræði
12.2.2009
Grunnmenntaskólinn hjá Mími-símenntun - hefst 9. mars nk.
Mímir-símenntun mun byrja með nýjan nemendahóp í Grunnmenntaskólanum mánudaginn 9. mars næstkomandi. Kennsla mun fara fram frá mánudegi til föstudags frá kl. 8:45-12:30. Náminu mun ljúka miðvikudaginn 10. júní.
Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám fyrir fólk sem hefur stutta skólagöngu að baki. Tilgangur skólans er að stuðla að jákvæðu viðhorfi til áframhaldandi náms og auðvelda fólki að takast á við ný verkefni. Í Grunnmenntaskólanum er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt
og lífsleikni. Námið byggir á frammistöðu og ábyrgð einstaklingsins en einnig samvinnu og samábyrgð nemenda og leiðbeinenda.. Námsárangur er ekki aðeins vitnisburður um frammistöðu einstaklings heldur einnig vitnisburður um aðstæður til náms og árangur af samvinnu námsmanna og leiðbeinenda.
Meðal námsgreina eru íslenska, enska, stærðfræði, sjálfsstyrking, samskipti og tölvur. Námsmat fer fram með verkefnavinnu, æfingum og símati.
Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til allt að 24 eininga í framhaldsskóla.
Nánari upplýsingar og skráning fer fram hjá Helgu Björk Pálsdóttur, verkefnastjóra í netfangið helga@mimir.is eða í síma 580-1813
Leit
Toppmynd




















