Samstarf um menntunarúrræði
28.1.2009
Grunnmenntaskólinn - Mímir símenntun
Mímir símenntun er nú að fara í gang með Grunnmenntaskólann í fyrsta skipti á dagtíma. Mikil eftispurn hefur verið eftir þessu námi á dagtíma vegna breyttra aðstæðna í íslensku efnahagslífi.
Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám fyrir fólk sem hefur stutta skólagöngu að baki. Tilgangur skólans er að stuðla að jákvæðu viðhorfi til áframhaldandi náms og auðvelda fólki að takast á við ný verkefni. Í Grunnmenntaskólanum er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt
og lífsleikni. Námið byggir á frammistöðu og ábyrgð einstaklingsins en einnig samvinnu og samábyrgð nemenda og leiðbeinenda.. Námsárangur er ekki aðeins vitnisburður um frammistöðu einstaklings heldur einnig vitnisburður um aðstæður til náms og árangur af samvinnu námsmanna og leiðbeinenda.
Meðal námsgreina eru íslenska, enska, stærðfræði, sjálfsstyrking, samskipti og tölvur. Námsmat fer fram með verkefnavinnu, æfingum og símati. Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til allt að 24 eininga í framhaldsskóla.
Leit
Toppmynd




















