Beint į leišarkerfi vefsins
Aftur į forsķšu

Samstarf um menntunarśrręši

 

Frettir         Tenglar        Upplysingar        Fundargerdir 

Samstarf um menntunarúrræði 

Ķ ljósi þeirra miklu hremminga sem hafa gengið yfir íslenskt samfélag síðustu vikurnar má gera ráð fyrir mikilli lægð á næsta ári með meira atvinnuleysi hér á landi en menn hafa séð um langt árabil.  Vegna þessara sérstöku aðstæðna sem hafa skapast hefur stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) sett af stað samstarfshóp um menntunarúrræði.  Fulltrúar frá ASÍ, SA, Vinnumálastofnun, Starfsmenntaráði, fræðsluaðilum og menntamálaráðuneyti eiga sæti í þessum samstarfshópi sem er undir forystu Ingibjargar Elsu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Meginhlutverk samstarfs um menntunarúrræði eru:

  • að vakta breytingar sem eru að verða og það sem gert er til að bregðast við þeim
  • að huga að hvar og hvernig eigi að bjóða og beita þeim úrræðum sem þegar eru til, meðal annars ráðgjöf, raunfærnimati og námi
  • að bæta við úrræðum fyrir einstaka hópa og huga að breyttri forgangsröðun í þeim málefnum sem til góða gætu komið fyrir hópinn

Samstarfshópurinn mun reyna að kortleggja og finna menntunarúrræði fyrir þá sem lenda í erfiðleikum á vinnumarkaði en markhópur FA eru þeir sem hafa minnsta formlega menntun. Þessi úrræði eru mjög mikilvæg til að bregðast við erfiðri stöðu einstaklinga þannig að aðgengileg fullorðinsfræðsla verði valkostur fyrir þá sem minnsta menntun hafa og missa vinnuna í þeim þrengingum sem ganga nú yfir íslenskt efnahagslíf.


Žś ert hér:

Samstarfshópur

Toppmynd

Auka gęši ķ fulloršinsfręšslu og starfsfręšslu į vinnumarkaši

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Information in English