Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Value of work

VOW-verkefnið

„The Value of Work“ eða Gildi starfa er tilraunaverkefni sem hleypt var af stokkunum haustið 2005. VOW-verkefnið var tilraunaverkefni til að þróa aðferðir fyrir mat á raunverulegri færni einstaklinga í atvinnulífinu. Fræðslumiðstöðin stýrði verkefninu. Auk FA tóku þátt stofnanir í Danmörku, Englandi, Kýpur, Slóveníu og Svíþjóð.

Samstarfsaðilar FA í verkefninu hér á landi eru Glitnir, Landsbankinn, KB banki, Menntaskólinn í Kópa-vogi, Samband íslenskra bankamanna, VR, starfsgreinaráð fjármála-, verslunar- og skrifstofugreina og menntamálaráðuneytið. Fulltrúar þessara aðila mynda faghóp í verkefninu sem fór reglulega yfir framvindu mála. Sams konar faghópar hagsmunaaðila hafa verið myndaðir í hinum löndunum.

Á Ísland var unnið með mat á raunfærni fyrir þjónustufulltrúa í bönkum. Þróuð voru evrópsk viðmið fyrir mat á færni fyrir störf almennra starfsmanna í bönkum  og prófuð aðferðafræði sem þróuð hefur verið í verkefninu. Alls útskrifuðust 19 bankastarfsmenn hjá Glitni, Landsbankanum og KB banka. Matið var byggt á færnimöppu, sjálfsmati, viðtölum, mati yfirmanns og mati í gegnum raundæmi. 

VOW-verkefnið var styrkt um 30 milljónir íslenskra króna frá Leonardo da Vinci-starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins.

Frekari upplýsingar um VOW-verkefnið er að finna á heimasíðu þess www.valueofwork.org. Meðal afurða verkefnisins eru Handbook of competence standards og Handbook of methods and tools.

___________________________________________________________________________________ 

Lokaráðstefna VOW

Í tilefni þess að VOW-verkefninu er lokið var haldin ráðstefna á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík 28. september 2007 Stefán Stefánsson, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, setti ráðstefnuna en Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, stýrði henni. Fjóla María Lárusdóttir, sérfræðingur hjá Fræðslu-miðstöð atvinnulífsins, gerð grein fyrir gangi verksins, niðurstöðum og afurðum sem verkefnið gaf af sér. Tveir víðkunnir erlendir fyrirlesarar, þau Lorna Unwin og John Konrad, fluttu fyrirlestra. Þrjár málstofur voru á ráðstefnunni og skiluðu álitum í lok hennar. Rúmlega 60 skráðu sig til þátttöku á ráðstefnunni.

___________________________________________________________________________________ 

Lorna Unwin

Lorna Unwin er prófessor í starfsnámi við Menntasetur Lundúnarháskóla. Hún hefur kennt við menntaskóla og símenntunarmiðstöðvar auk þess sem hún var námsstjóri hjá stórri keðju breskra smásöluverslana. Hún var fræðimaður við Opna Háskólann í Sheffield. Frá 2003 til 2006 var hún framkvæmdastjóri Miðstöðvar Vinnumarkaðsrannsókna í Leicesterháskóla. Nú stjórnar hún í félagi við aðra fjölsviðakönnun á samhengi vinnustaðanáms, skipulags vinnu og frammi-stöðu, sem er fjármagnað af Kennslu- og Námsáætlunar ESRC. Nýjustu bók sína - Improving Workplace Learning - skrifaði hún ásamt Karen Evans, Phil Hodkinson og Helen Rainbird. Routledge gaf bókina út 2006. Í lok þessa árs kemur út þriðja útgáfa af bók hennar Teaching and Learning in Further Education. Meðal þess sem Lorna hefur hug á að rannsaka er hlutverk starfsmenntunar í hraðfara breytingum á efnhagsumhverfi og möguleika starfsmenntunar til að leggja fagurfræðilegt og gagnrýnið mat á þjóðfélagið, hlutverk starfsins í lífi fólks og sam-félögum þess, gerð og stjórnun “gjöfuls” námsumhverfis, að vinnustöðum nmeðtöldum, og fagmannlegum þroska starfsmenntakennara. Glærur Unwin á PPTsniði hér.

John Konrad

John Konrad er aðalráðgjafi Konrad Associates International. Hann hefur starfað, kennt og rannsakað í næastum 40 ár á sviði starfsmenntunar og –þjálfunar. Frá árinu 2000 hefur hann unnið hjá Evrópusambandinu sem sérfræðingur í símenntun auk þesss sem hann hefur unnið fyrir nokkrar aðrar evrópskar stofnanir þar á meðal Cedefop þar sem hann var hvatamaður í netsamfélagi um greiningu og gildi óformlegs og formlauss náms. Hann var gestaprófessor í Kennsluvísindadeild Caen Basse-Normandie háskólans 2001-2002. Síðan 2007 hefur hann unnið að tilraunaverkefnum og samvinnuverkefnum á vegum evrópusambandsins og síðan 2004 unnið við að ýta úr vör verkefnum á sviði Almennra evrópskra meginreglna um gildi óformlegs og formlauss náms. Að undanförnu hefur hann tekið þátt í mörgum milliríkjaráðstefnum á starfssviðiði sínu. Hann hefur áhuga á að rannsaka þróun áreiðanlegs og lögmæts verklags við þjálfun og löggildingu fagmanna sem vinna við raunfærnimat. Glærur Konrad á PDF-sniði hér.

___________________________________________________________________________________


Þú ert hér:

Raunfærni » Value of work

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English