Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Raunfærni

RAUNFÆRNI – RAUNFÆRNIMAT bæklingur á íslensku og ensku. Í bæklingnum er útskýrð hugtök og ferli sem fylgir raunfærnimati.  Bæklingurinn er skrifaður fyrir væntanlega samstarfsaðila Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins í verkefnum sem tengjast raunfærnimati. Þrátt fyrir það hafa allir sem hafa áhuga á raunfærnimati gagn af því að lesa bæklinginn.  Bæklinginn er hægt að panta í fleiri en einu eintaki hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins í síma 599 1400. 

Smelltu hér ef þú vilt fá bæklinginn á íslensku.

IÐAN fræðslusetur ehf býður raunfærnimat. Nánar um það hér. IÐAN fræðslusetur ehf. varð til við samruna fjögurra fræðslumiðstöðva í iðnaði og ferðaþjónustu vorið 2006. Um áramótin 2006/2007 bættist síðan Fræðslumiðstöð bílgreina í hópinn. Eigendur IÐUNNAR eru: Samtök iðnaðarins, Samiðn, MATVÍS, Félag bókagerðarmanna, FIT, VM, Bílgreinasambandið og Samtök ferðaþjónustunnar. Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins býður raunfærnimat. Nánar um það hér. Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins sér um sveinspróf og eftirlit með gerð og framkvæmd námssamninga í rafiðngreinum. Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins veitir nemum og rafiðnaðarfyrirtækjum allar upplýsingar er varða gerð náms- og starfsþjálfunarsamninga og eru til aðstoðar um gerð þeirra.
 VALIDATION OF NON-FORMAL AND INFORMAL LEARNING IN ICELAND 

Smelltu hér ef þú vilt fá raunfærnibæklinginn á ensku.

Íslensk þýðing evrópskra leiðbeininga um mat á raunfærni.

Skýrsla um þróun raunfærnimats gerir grein fyrir stöðu mála hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins í verkefni því sem varðar raunfærnimat einstaklinga til styttingar náms á framhaldsskólastigi. Einnig tillögur um hvernig hægt sé að að koma upp kerfi til raunfærnimats á Íslandi. Smelltu hér ef þú vilt fá skýrsluna áPDF-sniði.

Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 2004 fjallaði um raunfærni og raunfærnimat.

Frá maí 2002 til maí 2003 voru gerðar skýrslur fyrir Kennaraháskóla Danmerkur um raunfærnimat í nokkrum löndum. Agnethe Nordentoft, sem flutti fyrirlestur um raunfærnimat á ársfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 2004 var meðal skýrsluhöfunda.

Samantekt um efni ráðstefnu um mat á óformlegu námi fullorðinna á Grand hóteli, Reykjavík 14. febrúar 2003.

Áhugasamir, sem vilja leita á eigin spýtur geta til dæmis notað eftirfarandi skammstafanir eða leitarorð:

Skst Stendur fyrir Land
ACPL Assessment of Certificate Prior Learning United Kingdom
APEL Assessment of Prior Experiental Eire Learning Southern Ireland
APL Accredited Prior Learning United Kingdom
APL Assesment of Prior Learning United Kingdom
PLA Prior Learning Assessment Canada eða USA
PLAR Prior Learning Assesment and Recognition Canada
RPL Recognition of Prior Learning Australia

Norskur vefur VOX, sem er miðstöð fullorðinnafræðslu í Noregi, fjallar meðal annars um  raunfærni: http://www.vox.no

Vefur um raunfærnimat í Ástralíu : http://www.archives.sa.gov.au/Training/trainingrpl/

Í Gautaborg er vefsíða um raunfærnimat,  „Validering” : http://www.valideringscentrum.nu/

Dönsk vefsíða um „realkompetence” – raunfærni: http://www.ug.dk/realkompetence/forside.aspx


Þú ert hér:

Raunfærni

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English