Beint á leiðarkerfi vefsins

Faghópar NVL

Nýlega var stofnaður bakhópur um starf NVL á Íslandi. Sá hópur hefur það verkefni að vera ráðgefandi við verkefnaval, hugmyndavinnu og miðlun upplýsinga til fulltrúa NVL á Íslandi. Í hópnum eru eftirtaldir aðilar: Aðalheiður Sigurjónsdóttir Mími-símenntun fyrir Leikn, samtök um fullorðinsfræðslu á Íslandi, Ólafur Grétar Kristjánsson menntamálaráðuneyti, Elín Hallgrímsdóttir HA, Steinunn Hafstað FA, Ragnhildur  Zoëga Nordplus vuxen og Sveinn Aðalsteinsson fulltrúi atvinnulífsins, Starfsafli.    

Á fundi sem haldinn var á vordögum 2008 kom hópurinn fyrst saman ásamt öllum fulltrúum Íslands í mismunandi starfshópum NVL. Fulltrúarnir kynntu starfsemi hópanna sem þeir sitja í. Guðmundur B. Kristmundsson fulltrúi Lestrarráðsins sagði frá starfsemi ráðsins en nýlega var gefin út skýrsla um lestrarkennslu á Norðurlöndunum, Alfabetiserings utbildning i Norden. Skýrslan og meira um starfsemi Lestrarráðsins er á slóðinni http://www.nordvux.net/page/575/alfaradet.htm

Kynning á faghópi um kennslufræði var í höndum Sigrúnar Jóhannesdóttur FA. Hún velti upp verkefni hópsins sem snýr að stöðu og innihaldi kennaramenntunar og þörf á því að efla færni kennara til nýsköpunar og breytinga. Nefndi tillögur um endurmenntun fyrir kennara í fullorðinsfræðslu. Meira um starfsemi kennslufræðihóps eru á  http://www.nordvux.net/page/581/vuxenpedagogik.htm

Ráðgjafarnetið kynnti Anna Sigurðardóttir KHÍ. Hún sagði frá menntun ráðgjafa á Norðurlöndunum sem virðist að miklu leyti vera skólamiðuð.  Verkefni ráðgjafarnetsins er að kortleggja hvaða hæfni ráðgjafar í fullorðinsfræðslu þurfi að hafa til þess að geta sem best sinnt fólki í atvinnulífinu.   Meira um ráðgjafarnetið á  http://www.nordvux.net/page/580/vagledning.htm

Fjóla María Lárusdóttir FA sagði frá raunfærnimatsnetinu sem gegnir m.a. því hlutverki að vera ráðgefandi fyrir SVL og NVL um raunfærnimat. Netið safnar saman góðum dæmum frá Norðurlöndunum og hefur gert samanburðarrannsókn á því hvað verið er að  meta hjá einstaklingum á Norðurlöndunum. Myndaður hefur verið bakhópur um raunfærnimat á Íslandi. Í honum eru Arnheiður Gígja Hermannsdóttir Mími-símenntun, Björn Garðarsson Fagráði verslunar og þjónustu, Auður Þórhallsdóttir Samskipum, Heimir Guðjónsson FB og Iðunn Kjartansdóttir Iðunni-fræðslusetri. Stefnt er að hagnýtu kerfi um raunfærnimat árið 2009. Skýrslan Validering i de nordiska ländarna er nýútkomin en meira um faghópinn er á síðu netsins http://www.nordvux.net/page/573/validering.htm

Fulltrúi Íslands í faghópnum Eldri borgarar í atvinnulífinu er Bernharður Guðmundsson. Hann sagði frá fjölbreyttum verkefnum netsins og stöðu eldri borgara. Brýnt er að auka val eldri borgara á vinnustað því engin þjóð hefur efni á því að þeir fari of snemma út af vinnumarkaðnum. Meira um verkefni faghópsins er á slóðinni  http://www.nordvux.net/page/570/aldreiarbetslivet.htm

Kynningu á faghópnum Formleg fullorðinsfræðsla sá Björg Árnadóttir um. Helstu verkefni þeirra hefur verið skýrsla um sérkennslu árið 2006, raunfærnimat kennara í kennslustofunum og tækifæri til starfsmenntunar á Norðurlöndunum. Ráðstefna um gæði í menntun verður haldin í Borgarnesi árið 2009. Meira um faghópinn og verkefni hans er á slóðinni http://www.nordvux.net/page/577/formellvuxenutbildning.htm

Guðfinna Harðardóttir FA sá um kynningu á gæðanetinu. Stór ráðstefna verður haldin á vegum netsins dagana 14. – 15. maí nk. Á ráðstefnunni verður kynnt skýrsla um gæði í fullorðinsfræðslu og eru í henni greiningardæmi frá öllum Norðurlöndunum. Töluverður fjöldi Íslendinga sækir ráðstefnuna. Á Íslandi er starfandi bakhópur um gæði í fullorðinsfræðslu. Meðlimir hópsins eru Emil Björnsson Þekkingarneti Austurlands, Kristín Njálsdóttir Landsmennt, Sigríður Ágústsdóttir Fjöltækniskóla Íslands, Guðfinna Harðardóttir FA og Gylfi Einarsson Iðunni-fræðslusetri. Meira um gæðahóp NVL og ráðstefnuna er á slóðinni http://www.nordvux.net/page/578/kvalitetsnatverk.htm

Hróbjartur Árnason KHÍ stýrir fjarkennsluhópnum Distans. Næsta málþing þess hóps um Skipulag náms verður í Kaupmannahöfn dagana 22. – 23. maí nk. Meira um fyrri ráðstefnur og fjarkennsluhópinn á http://www.nordvux.net/page/574/distansnatverk.htm

Þór Ingi Daníelsson er fulltrúi Íslands í faghópnum Atvinnulíf fyrir alla, ráðstefna á þeirra vegum verður á Íslandi þann 28. maí. Frekari upplýsingar um starfsemi hópsins er á síðunni http://www.nordvux.net/page/610/læringpaarbeidsplassenhindringer.htm

Á vegum fangelsisnetsins er verið að vinna stóra rannsókn á menntun fanga á Norðurlöndunum. Erlendur Baldursson Fangelsismálastofnun og Ingis Ingason kennslustjóri á Litla Hrauni eru fulltrúar í netinu. Meira um starfsemi þess er á slóðinni http://www.nordvux.net/page/373/page.htm

Í rannsóknanetinu eru Jón Torfi Jónasson og Inga Jóna Jónsdóttir frá HÍ. Allar upplýsingar um starfsemina á http://www.nordvux.net/page/518/forskningsnatverk.htm

Á vefslóðinni www.nordvux.net er að finna allar upplýsingar um starfsemi NVL á Norðurlöndunum. Fulltrúi NVL á Íslandi er Arnþrúður Ösp Karlsdóttirog er hún með netfangið arnthrudur@frae.is

 
     
     
     
     

Þú ert hér:

NVL á Íslandi » Faghópar NVL

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English