Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

NVL

Norrænt tengslanet um fullorðinsfræðslu, NVL

Fullorðinsfræðsla nýtur forgangs í norrænu samstarfi. NVL á að auka samlegðaráhrifin með því að safna saman hæfni og reynslu á þessu sviði frá Norðurlöndunum fimm og sjálfstjórnarsvæðunum þremur. Markmiðið er að sýna og miðla þekkingu um nám fullorðinna á Norðurlöndunum, grannsvæðunum, norðvestur Rússlandi og öðrum löndum í Evrópu. NVL er norrænn vettvangur fullorðinsfræðslu og beinir athygli að nýsköpun, miðlun og árangri. NVL hvetur til samræðu á milli ólíkra tengslaneta, kemur á nýjum netum og eflir framlag þeirra til norræns samstarfs. NVL vinnur þverfaglega og hvetur til samstarfs á milli formlegra fræðsluaðila, aðila í fullorðinsfræðslu, alþýðufræðslu, fræðslu á vinnustöðum, fræðasamfélagsins og framkvæmdaaðila.
NVL á að vinna að eftirfarandi verkefnum: 
  • Efla símenntun og færnieflingu á öllum sviðum fræðslu á Norðurlöndunum.
  • Stuðla að persónulegum þroska og virkri lýðræðisþátttöku með fjölbreyttum aðferðum fullorðinsfræðslu.
  • Auka samvinnu við menntaáætlun Nordplus, með það að markmiði að taka þátt í þróun menntakerfa á Norðurlöndunum.
  • Miðla upplýsingum og reynslu af norrænu samstarfi á markvissan og skipulagðan hátt á Norðurlönd-unum og til Evrópu.
  • NVL er norrænt verkefni sem Norræna ráðherranefndin (NMR) hefur falið VOX, stofnun fyrir stefnumótun á sviði færni og þekkingar í Noregi, að leiða. Starfsemi NVL byggist á stefnu NMR um menntun og rannsóknir, stefnu Stýrihóps fyrir fullorðinsfræðslu, SVL) og árlegrar stefnu þess lands sem fer með formennsku í ráðherranefndinni hverju sinni.
  • NVL birtir upplýsingar um starfsemina á heimasíðu sinni http://www.nordvux.net Á heimasíðunni er einnig hægt að gerast áskrifandi að veftímaritinu DialogWeb og mánaðarlegum fréttabréfum tengslanetsins.
     

Þú ert hér:

NVL á Íslandi

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English