Fréttir
9.3.2012
Fræðslufundur ráðgjafanets FA
Þann 2. mars fór fram 22. fundur í ráðgjafaneti FA. Fundinn sóttu 25 manns. Farið var yfir tölur í ráðgjöfinni fyrir árið 2011. Starfsemi Fræðslusetursins Starfsmenntar var kynnt og niðurstöður mastersritgerðar um sjómenn og viðhorf þeirra til náms og starfs. Samantektir á árskýrslum og niðurstöðum rýnifunda með notendum þjónustunnar voru kynntar og ræddar. Kynnt var mastersritgerð sem er í bígerð sem mun fjalla um áhrif Grunnmenntaskólans og farið yfir framkvæmd og gæði raunfærnimats út frá nýlegri reglugerð um framhaldsfræðsluna.
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd























