Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

21.2.2012

Góð aðsókn á námskeið í raunfærnimati

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins stóð fyrir námskeiði um raunfærnimat 16. og 17. febrúar. Námskeiðið var haldið í Reykjavík og alls sóttu 17 einstaklingar námskeiðið, fagaðilar, verkefnastjórar og náms- og starfsráðgjafar í raunfærnimatsverkefnum sem eru framundan.

Þetta er fyrsta námskeiðið sem er haldið eftir að Reglugerð um framhaldsfræðslu var gefin út í nóvember 2010 og því var búið að uppfæra námsgögn og gátlista til samræmis við reglugerðina. Með útgáfu laga um framhaldsfræðslu og í kjölfarið reglugerðar má segja að raunfærnimat búið að slíta barnsskónum og komið af tilraunastiginu. Það á sér nú stoð í lögum og reglugerðin er góður stuðningur við að skýra út framkvæmd, ábyrgð á framkvæmd og niðurstöðum og réttindi einstaklings.

Námskeið í raunfærnimati - 1

Námskeið í raunfærnimati - 2


Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English