Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

7.2.2012

Fjöldi þátttakenda á Stiklunámskeiðum hjá Símey á Akureyri

Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar stóð fyrir mjög vel sóttum Stiklunámskeiðum þann 3. og 4. febrúar s.l. í húsnæði sínu við Þórsgötu á Akureyri. Þær Sigrún Jóhannesdóttir og Jórunn Magnúsdóttir frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins voru leiðbeinendur á námskeiðunum, þar sem  fjallað var um fræðslustarfsmanninn í nútímasamfélagi og þarfir fullorðinna námsmanna.

Alls tóku þátt 28 leiðbeinendur, stjórnendur og starfsmenn og komu þeir víðs vegar að, m.a. frá Farskólanum, miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra og Þekkingarneti Þingeyinga. Óhætt er að segja að gleði, frjó hugsun og líflegar umræður hafi einkennt starfið báða dagana.

Frá Stiklunámskeiði á Akureyr

Frá Stiklunámskeiði á Akureyri

Frá Stiklunámskeiði á Akureyri


Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English