Fréttir
20.1.2012
Hvað þarf fullorðinsfræðarinn að kunna?
Námsstefna um hæfni fullorðinsfræðarans var haldin þann 12. janúar síðastliðinn á Hilton Reykjavík Nordica. Það voru fulltrúar NVL í Danmörku og á Íslandi sem í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og menntavísindasvið Háskóla Íslands stóðu fyrir henni.
Mjög góð mæting var á námstefnuna á Hilton Reykjavík Nordica.
Á námsstefnunni var fjallað, frá ýmsum sjónarhornum, um hæfnikröfur sem gerðar eru til þeirra sem skipuleggja nám fyrir fullorðna og kenna þeim og hvaða nám stendur þeim til boða. Fyrirlesarar frá Íslandi fjölluðu um málið frá íslensku sjónarhorni og þrír erlendir gestir gerðu grein fyrir nýlegum rannsóknum á sviðinu: Maria Marquard, fulltrúi Dana í NVL kynnti niðurstöðu kortlagningar á kröfum sem gerðar eru til þeirra sem koma að námi fullorðinna á Norðurlöndunum. Prófessor Bjarne Wahlgren, Miðstöð færniþróunar í Danmörku, DPU, fjallaði um þema dagsins: Hæfni sem fólk sem starfar við nám og kennslu fullorðinna þarf að hafa til að starfið beri árangur. Þá fjallaði prófessor Per-Erik Ellström, Linköping University um rannsóknir sínar á vinnustaðanámi og afleiðingar þeirra fyrir skipulag fræðslu og færniþróunar í fyrirtækjum. Þátttakendur voru virkir í líflegum samræðum og hópavinnu.
Dagskrá:
|
08:30 |
Skráning / molasopi |
|
09:00 |
Opnun / velkomin Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins |
|
09:10 |
Hópavinna |
|
09:35 |
Hvaða máli skiptir að kunna til verka? Inngangur að þema dagsins Hróbjartur Árnason, Menntavísindasvið Háskóla Íslands |
|
9:50 |
Challenges and opportunities for developing quality within the area of adult learning- regarding competence development of the adult educator, a mapping study |
|
10:10 |
Kaffi |
|
10:40 |
Efling fræðslu starfsfólks í framhaldsfræðslu á Íslandi |
|
11:00 |
Adult pedagogic competence. What should an adult educator know in order to create best possible connection between education and work place |
|
12:00 |
Hádegisverður |
|
12:40 |
Organising Competence Development at the Workplace: Towards an Integrated Model |
|
13:40 |
Hæfni fullorðinsfræðara á Íslandi hver er staðan? Ragnhildur Vigfúsdóttir, Landsvirkjun - glærur |
|
14:00 |
Þrjú menntunartilboð á Íslandi |
|
14:20 |
Hópavinna með kaffi: Hvað þurfa þau að kunna? Og hvað vilja þau gjarnan læra? |
|
15:45 |
Samantekt Jón Torfi Jónasson, Menntavísindasvið Háskóla Íslands |
|
16:00 |
Endir |
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd























