Fréttir
13.1.2012
Þjálfun vegna raunfærnimats - námskeið 16. og 17. febrúar 2012
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins mun bjóða upp á námskeið um raunfærnimat 16. - 17. febrúar 2012. Námskeiðin eru ætluð fagaðilum, náms- og starfsráðgjöfum og verkefnisstjórum sem koma að raunfærnimatsverkefnum. Ekkert námskeiðsgjald er greitt, en FA greiðir hvorki fyrir ferðir né uppihald þátttakenda.
Fyrri daginn hefst námskeiðið kl. 10.15 og er það hugsað til að þátttakendur af landsbyggðinni eigi möguleika á að koma samdægurs. Nánari upplýsingar um tíma er að finna í drögum að dagskrá. Seinni daginn byrjum við kl. 9.00.
Tilgangur námskeiðanna er að kynna fyrir þátttakendum hugtakið raunfærnimat og þjálfa þá í því að vinna við raunfærnimat samkvæmt því ferli sem þróað hefur verið hér á landi. Námskeiðið er liður í því að formfesta raunfærnimatsferlið, stuðla að gæðum og mæta síauknum þörfum. Námskeiðið er samtals 15 kennslustundir.
Á námskeiðinu verður farið yfir þróun raunfærnimats og fyrirbærið skilgreint. Farið verður yfir það raunfærnimatsferli sem þróað hefur verið hér á landi og greiningardæmi til glöggvunar á framkvæmd þess. Lögð er áhersla á almenna virkni þátttakenda í gegnum umræður og æfingar í hópum þar sem þátttakendur fá tækifæri til að byggja upp færni í að meta raunfærni á uppbyggilegan og réttmætan hátt og finna lausnir á álitamálum.
Umsjón:Haukur Harðarson, haukar@frae.is
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd























