Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

22.12.2011

Námsstefna um hæfni fullorðinsfræðarans - 12. janúar 2012

NVL í Danmörku og á Íslandi stendur í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og menntavísindasvið Háskóla Íslands fyrir námsstefnu þann 12. janúar 2012 á Hilton Reykjavik Nordica.

Þar verður fjallað, frá ýmsum sjónarhornum, um hæfnikröfur sem gerðar eru til þeirra sem skipuleggja nám fyrir fullorðna og kenna þeim og hvaða nám stendur þeim til boða. Íslenskir fyrirlesarar munu fjalla um málið frá íslensku sjónarhorni og þrír erlendir gestir gera grein fyrir nýlegum rannsóknum á sviðinu:  Maria Marquard, fulltrúi Dana í NVL mun kynna niðurstöðu kortlagningar á kröfum sem gerðar eru til þeirra sem koma að námi fullorðinna á Norðurlöndunum. Prófessor Bjarne Wahlgren, Miðstöð færniþróunar í Danmörku, DPU, mun fjalla beint um þema dagsins: Hæfni sem fólk sem starfar við nám og kennslu fullorðinna þarf til að starfið beri árangur og prófessor Per-Erik Ellström, Linköping University mun fjalla um rannsóknir sínar á vinnustaðanámi og afleiðingar þeirra fyrir skipulag fræðslu  og færniþróunar í fyrirtækjum. Áhersla verður lögð á líflegar samræður og skoðanaskipti.

Dagskrá

Skráning


Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English