Fréttir
6.12.2011
Fyrirmyndir ķ nįmi fulloršinna 2011
Į ráðstefnu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Norræns tengslanets um nám fullorðinna sem bar undirskriftina „Ný viðhorf til náms" sem haldin var á Hótel Reykjavík Natura 2. desember s.l. voru þau Jón Heiðar Erlendsson og Freyja Margrét Bjarnadóttir valin fyrirmyndir í námi fullorðinna árið 2011. Viðurkenning þessi og verðlaunin sem henni fylgja eru veitt einstaklingum hafa skarað fram úr í námi fullorðinna á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Báðir verðlaunahafarnir hafa sýnt góðan námsárangur, frumkvæði, kjark og náð að yfirstíga ýmis konar hindranir í sínu námi.
Jón Heiðar Erlendsson er 32. ára gamall og hafði ekki verið lengi í námi þegar hann hóf nám í Menntastoðum hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Ástæður þess að Jón Heiðar hætti fljótlega námi eftir grunnskóla má rekja til námserfiðleika m.a. vegna athyglisbrests og ofvirkni. Þegar Jón Heiðar hóf námið í Menntastoðum hjá MSS var hann án atvinnu og fannst honum sjálfum vera kominn tími til að láta gamlan draum rætast þ.e. að mennta sig meira. Eftir að hafa lokið Menntastoðum hóf Jón Heiðar nám í Háskólabrúnni hjá Keili og þaðan lauk hann námi vorið 2011. Síðasta haust hóf Jón Heiðar síðan nám í verkfræði í Háskólanum í Reykjavík.
Freyja Margrét Bjarnadóttir er 57 ára gömul og tók hún Starfsnám stuðningsfulltrúa hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt árið 2002-2003 en námið stundaði hún hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða á Ísafirði í gegnum fjarfundarbúnað. Tæpum 15 árum fyrr hafði Freyja hafið nám í Öldungadeild Menntaskólans á Ísafirði (MÍ) en hætti eftir fáeinar annir þar sem hún taldi rétt að láta nám sinna barna ganga fyrir og fór aftur út á vinnumarkaðinn. Eftir að hafa lokið Starfsnámi stuðningsfulltrúa var ekki aftur snúið hjá Freyju því hún árið 2005 lauk hún félagsliðabrú frá MÍ, sjúkraliðaprófi 2009 og síðan stúdentsprófi árið 2010 einnig frá MÍ. Menntaþráin hafði lengi blundað í Freyju áður en hún hóf nám að nýju en fjölskylduaðstæður, veikindi og aðrar ástæður voru hennar hindrun. Betra er seint en aldrei segir einhvers staðar og Freyja Margrét lét sína drauma um menntun rætast. Í lok árs 2011 innritaði Freyja sig í nám í þjóðfræði í Háskóla Íslands og mun hún hefja nám þar í byrjun árs 2012.
Į fjölsóttri ráðstefnunni sögðu þau Jón Heiðar og Freyja Margrét frá sinni reynslu af skóla og frá þeim hindrunum sem þau þurftu að hrinda úr vegi til að komast þangað sem þau höfðu stefnt að og dreymt um lengi. Við afhendingu verðlaunanna hylltu gestir ráðstefnunnar þau Jón Heiðar og Freyju Margréti sem standa vel undir nafn sem fyrirmyndir í námi fullorðinna árið 2011.

Fyrirmyndir í námi fullorðinna hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) árið 2011. Frá
vinstri: Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri FA, Árni Stefán Jónsson
varaformaður stjórnar FA, Jón Heiðar Erlendsson og Freyja Margrét Bjarnadóttir
verðlaunahafar og Guðrún Eyjólfsdóttir formaður stjórnar FA.

Jón Heiðar Erlendsson

Freyja Margrét Bjarnadóttir
Žś ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd




















