Fréttir
16.11.2011
Vottašar nįmsleišir - Auglżst eftir umsóknum
Fræðslusjóður, sem starfar á grundvelli laga um framhaldsfræðslu nr. 27/2010, auglýsir eftir umsóknum um framlög og stuðning til að mæta kostnaði við kennslu og námskeiðahald fyrir fullorðið fólk. Námið skal byggja á markmiðum laga um framhaldsfræðslu, þ.e. kennsla og námskeiðahald, sem ætlað er að mæta þörfum einstaklinga með stutta formlega skólagöngu að baki og er ekki skipulagt á grundvelli laga um framhaldsskóla eða háskóla. Umsækjandi skal veita upplýsingar um markmið námsins, markhópa, kennslustundafjölda, kennslutíma, fjölda námsleiða, áætlaðan fjölda þátttakenda og námskeiðskostnað. Námið skal haldið á grundvelli vottaðra námsskráa.
Eingöngu eru veittir styrkir til viðurkenndra fræðsluaðila. Fræðsluaðilar skulu fara eftir gæðaviðmiðum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, sem birt eru á vef http://frae.is/ymis-gogn/gaedavidmid.
Að lokinni námsleið skulu upplýsingar um námsleið og þá einstaklinga sem hafa lokið henni færðar í gagnagrunn til varðveislu. Skýrslu skal skilað til Fræðslusjóðs tvisvar á ári um framvindu og árangur starfsins, í júlí og janúar. Þar skal koma fram tegund náms, fjármögnun þess, lengd, einingafjöldi og heildarfjöldi nemendastunda, fjöldi einstaklinga sem hóf og lauk námi skipt eftir kynjum og stöðu á vinnumarkaði/félagsaðild.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur eftirlit með gæðum námskeiðahaldsins og áskilur sér rétt til að kalla eftir frekari upplýsingum er varða rekstur og faglega framkvæmd námsleiða. Þar með taldar eru upplýsingar um reikningshald, fjármögnun, greiðslur nemenda, matsblöð og viðveruskráningu, sem og upplýsingar um kennara, menntun þeirra og starfsreynslu og það námsefni sem stuðst er við.
Skilafrestur umsókna er til og með 4. desember 2011. Umsóknum skal skilað til Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík eða á tölvupóstfangið:fraedslusjodur@frae.is
Žś ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd




















