Fréttir
16.11.2011
Ný viðhorf til náms - Ráðstefna í samstarfi FA og NVL, föstudaginn 2. desember 2011
Ný viðhorf til náms er yfirskrift ráðstefnu sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Norrænt tengslanet um nám fullorðinna halda í samstarfi, föstudaginn 2. desember kl. 13.30-16.30 á Hótel Reykjavík Natura.
Þema ráðstefnunnar er nýjungar og nýsköpun. Aðalfyrirlesarar eru Dr. Jyri Manninen, prófessor við Háskólann í Austur Finnlandi, Margrét Friðriksdóttir, skólameistari MK, Guðmundur Gíslason, forstöðumaður fangelsa á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri og Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Dagskrá ráðstefnunnar er að finna hér. Á ráðstefnunni verður tilkynnt um val á fyrirmyndum í námi fullorðinna og Gátt 2011 verður gefin út.
Aðgangur er ókeypis en við biðjum þá sem óska eftir að taka þátt í fundinum um að skrá sig.
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd




















