Fréttir
27.10.2011
Málstofa SÆNS, NVL og FA - fimmtudaginn 3. nóvember 2011
Velkomin á málstofu Sérfræðiseturs í ævilangri náms- og starfsráðgjöf (SÆNS) og Norræna tengslanetsins um fullorðinsfræðslu (NVL) og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins fimmtudaginn 3. nóvember nk. á Hótel Nordica Hilton, frá kl. 9:30-14:00.
Þar verða niðurstöður rannsóknar á viðhorfi fullorðinna notenda náms- og starfsráðgjafar á Norðurlöndunum kynntar. Skýrsla um verkefnið Voice of Users er aðgengileg á heimasíðu NVL, á slóðinni http://www.nordvux.net/download/6821/voice_of_users.pdf .
Dagskráin er í viðhengi. Þátttaka í málstofunni er að kostnaðarlausu en þeir sem hafa hug á að mæta eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig á hér. Velkomið að senda boðið áfram til þeirra sem þið teljið að eigi erindi á málstofuna.
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd























