Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

5.9.2011

Grunnnámskeið fyrir fiskvinnslufólk - auglýst eftir umsóknum

Grunnnámskeið fyrir fiskvinnslufólk  hefur verið skipulagt  frá 1986 af Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar og er kjarasamningsbundið.  Fjármögnun námskeiðanna  hefur að mestu  verið á hendi sjávarútvegsráðuneytisins. Um síðastliðin áramót varð breyting á þessum málum sem hefur orðið til þess að námskeiðahald hefur frestast þar til nýskipan þeirra hefur tekið gildi.   Grunnnámskeið fyrir fiskvinnslufólk hefur verið gefið út í námsskrá af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og vottað af mennta- og menningarmálaráðuneytinu til allt að  5 eininga á framhaldsskólastigi.

Nú hefur verið gerður samningur milli Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um fjármögnun á nokkrum grunnnámskeiðum fyrir fiskvinnslufólk, 10 bóklegir námsþættir, samtals 40 klukkustundir.  Starfsfræðslunefnd  frá samningsaðilum  hefur  tekið til starfa  og mun  verða til ráðgjafar um úthlutanir fjár til námskeiðanna ásamt því að koma þessu námskeiðahaldi  á ný  í  fastan farveg.

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins auglýsir eftir umsóknum um fjárframlög til námskeiðahalds. Umsókn skal skilað á póstfangið gudrun@frae.is fyrir 20. september nk. Skilyrði fyrir fjárveitingu er að námskeiðin fari fram á árinu 2011. Skila skal fjárhagsáætlun fyrir hvert námskeið, lýsingu á námskeiði og gera grein fyrir því  hversu margir þátttakendur eru áætlaðir og einnig hvort túlkaþjónustu er þörf. Lágmarksfjöldi þátttakenda á hvert námskeið er 12 manns en víða eru þátttakendur í hverjum námshópi úr fleiri en einu fyrirtæki.  Að öðru leyti vísast til ákvæða í 18. kafla í kjarasamningi SA og SGS/Flóans frá 5. maí 2011. Miðað er við að kennsla  verði  á dagvinnutíma.

Úthlutun lýkur fyrir 10. október nk.  og verður þeim sem fá styrk til námskeiðahalds tilkynnt um niðurstöðu úthlutunar fyrir 15.  október nk. Styrkur verður greiddur út eftir að námskeiðin hafa verið haldin og listum yfir þátttakendur skilað til Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Auglýsingu þessari verður dreift til fyrirtækja í fiskvinnslu, stéttarfélaga fiskvinnslufólks og símenntunarmiðstöðva. Áskilið er við úthlutun til námskeiðahalds að samstarf sé við símenntunarmiðstöð sem hefur gert þjónustusamning við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

Reykjavík 2. september 2011

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins


Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English